Verslunarbraut
 BRAUTARLÝSING SEM GILDIR FRÁ HAUSTI 2009
Áfangaheiti breytast frá fyrri lýsingu. En námið tekur tvö ár eins og áður. Brautin hefur verið löguð að nýrri námskrá. Þetta felur í sér smá áherslubreytingar en meginmarkmið eru þau sömu og áður. Þ.e. að búa nemendur undir fjölbreytt störf innan smásölu- og heildverslana, einkum afgreiðslu- og skrifstofustörf. Nám á brautinni veitir almenna innsýn í rekstur verslunarfyrirtækja auk þess sem kennd er ýmiss konar grunnfærni eins og bókfærsla, rekstrarhagfræði, þjóðhagfræði, fjármál, framkoma og þjónusta. Nemendur kynnast fjölbreyttum störfum og vinnuumhverfi í gegnum starfsþjálfun. Mikill hluti af einingunum nýtist nemendum
áfram til stúdentsprófs en eðlilegt framhald er á tungumála- og félagsfræðabraut.
Nemendur útskrifast með verslunarpróf.
Þeir hafa þá lokið helmingi náms til stúdentsprófs ef þeir kjósa að halda áfram.
Móðurmál Einingar
Íslenska ÍSL102  ÍSL202  ÍSL232 6
Erlend tungumál
Danska DAN102 2
Enska ENS102  ENS202  ENS232 6
Samfélagsgreinar
Lífsleikni LKN103 3
Raungreinar
Stærðfræði STÆ102     STÆ122 4
Íþróttir
Íþróttir ÍÞR101, IÞR111    IÞR202 4
Alls
25 ein
Faggreinar:
Bókfærsla BÓK103 3
Rekstrar- og þjóðhagfræði HAG103   HAG113 6
Tölvufræði UTN103    UTN203 6
Samskipti og þjónusta SAÞ103 3
Viðskiptafræði VIÐ113  VIÐ143 6
Vinnu- og vörumarkaður VVÖ103 3
Alls
27
Sérgreinar Verslunarbrautar:
Bókfærsla 2 á VE (=ÞV) BÓK203 3
Viðskiptafræði á VE VID123, 153 og 233 9
Vinnu- og vörumarkaður 2 á VE VVÖ223 3
Alls
15
Vinnustaðanám á VE (ÞV) ÞV9010 10
Ein. á VE braut samtals 77
   
Uppfært. 2.2.10 ÁV