mynd

  Samtök sálfræði og uppeldisfræðikennara  

Aðalfundur Samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara

 

Aðalfundurinn verður haldinn laugardaginn 13. nóvember næstkomandi í húsi Kennarafélagsins við Laufásveg. Fundurinn hefst klukkan 16:00.

Dagskrá fundarins:

1. Kosning fundarstjóra
2. Skýrsla formanns
3. Reikningar félagsins lagðir fram
4. Kosning stjórnar
5. Mál EFPTA
6. Önnur mál

Með bestu kveðju,

Stjórnin

 

_________________________________________________

 

 

Eldri tilkynningar:

Námsmat í nýju skólaumhverfi


Námskeið haldið í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi í stofu 201 (austast á 2. hæð)


Dagana 11. og 12. ágúst 2010


Markmið: Að varpa ljósi á námsmat á mismunandi hæfnisþrepum, bæði í sálfræði og uppeldisfræði.


Lögð verður áhersla á tengingu markmiða, aðferða og námsmats í nýju starfsumhverfi framhaldsskóla. Fjallað verður um gæðamat á námsbrautum og reynsla af nýjum kennslu- og námsmatsaðferðum verðu kynnt. Að lokum verður unnið út frá inntaki námskeiðsins í smærri vinnuhópum.

Dagskrá:


Miðvikudagur 11. ágúst


Kl. 9-12
m. pásu Hildigunnur Gunnarsdóttir Fjallar um gæðamat námsbrauta.


Kl. 12 -13 Hádegisverður


Kl. 13-16 Helgi Hermannsson Fjallar um nýstárlegar námsmatsaðferðir í félagsgreinum.

 

Fimmtudagur 12.ágúst


Kl. 9 – 12 Sólrún Guðjónsdóttir Kennsla félagsgreina í Grundarfirði


Kl. 12-13 Hádegisverður


Kl. 13-16 Workshop

Athugið: Félagið sér að venju fyrir kaffiveitingum en þátttakendur námskeiðsins greiða sjálfir fyrir hádegisverð. Ef menn hafa áhuga á að gista á staðnum á milli námsskeiðsdaganna er bent á Hótel Selfoss eða Gesthús á Selfossi sem selur gistirými í litlum sumarhúsum í nágrenni Fjölbrautaskólans
Skólinn er staðsettur að Tryggvagötu 25, en Tryggvagatan er fyrsta þvergatan (austan hringtorgs) á Austurvegi sem er hluti þjóðvegar 1 og liggur í gegnum bæinn.

 

 

 

Sumarnámskeið 2010

Námsmat í nýju skólaumhverfi

Haldið í samstarfi við Félag sálfræði- og uppeldisfræðikennara og ætlað félasmönnum sem kenna á framhaldsskólastigi.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2010.

Markmið námskeiðsins er að varpa ljósi á námsmat á mismunandi hæfnisþrepum bæði í sálfræði og uppeldisfræði. Lögð verður áhersla á tengingu markmiða, aðferða og námsmats í nýju starfsumhverfi framhaldsskóla. Fjallað verður um gæðamat á námsbrautum og reynsla af nýjum kennslu- og námsmatsaðferðum verður kynnt. Að lokum verður unnið út frá inntaki námskeiðsins í smærri vinnuhópum.

Námskeiðið er haldið í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.

Hér eru upplýsingar um sumarnámskeiðið

 

 

 

Aðalfundur Samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara

 

Verður haldinn laugardaginn 17. október næstkomandi í húsi Kennarafélagsins við Laufásveg. Fundurinn hefst klukkan 18:00.

Dagskrá fundarins:

1. Skýrsla formanns

2. Reikningar lagðir fram

3. Kosning stjórnar

4. Annáll EFPTA

5. Önnur mál

 

Sérstakur gestur fundarins verður Joe Cocker, stjórnarmaður og einn helsti forsprakki EFPTA.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

 

Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku og þeir af landsbyggðinni sem taka flug eu beðnir að bóka far sem fyrst þannig að sem hagstæðasta verð fáist.

 

Eldra efni fréttir:

 

Sumarnámskeið Samtaka Sálfræði- og Uppeldisfræðikennara

12. - 13. ágúst 2009

Ný framtíðarsýn, námskrá og námsmat

Minnum á að umsóknarfrestur rennur út 8. júní. Skráning hér 

Að gefnu tilefni er ástæða til að taka fram að sumarnámskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.  Þegar sótt er um skal merkja í greiðsluseðil (sem verður ekki sendur út).   Ástæða þessa hvimleiða fyrirkomulags er að skráning á sumarnámskeið framhaldsskólakennara fer í gegnum sömu greiðslugátt og annarra námskeiða Endurmenntunar.  Samkvæmt upplýsingum frá Endurmenntun stendur þetta til bóta en þó ekki fyrr en síðar á árinu.

 

Markmið:

Samfara breyttum áherslum í íslensku menntakerfi (samstíga áherslum ESB!!) er markmið samtakanna að kennarar innan þeirra vébanda öðlist þekkingu á lögunum. 

Tilgangurinn er tvíþættur:

Að auka skilning á hugmyndafræði  nýrra laga gagngert til að auka samkeppnishæfni félagsmanna í þróunarvinnu sem kemur til með að eiga sér stað innan skólanna .

Að auka skilning og hæfni til að innleiða breyttar áherslur á inntaki náms og uppfylla skilyrði um námsmat . 

 

Leið að markmiði:

Ætlunin er að taka valda sálfræði- og uppeldisfræðiáfanga sem í boði eru á framhaldsskólastigi skv. Aðalnámskrá framhaldsskólanna  fyrir þannig að þeir falli innan ramma væntanlegra nýrra laga.  Valdir áfangar verða teknir fyrir og flokkaðir á viðeigandi hæfnisþrep og útsettir með tillit til lærdómsviðmiða  þess þreps (m.v. lærdómsviðmið sem þróuð hafa verið af Menntamálaráðuneyti) .  

Í framhaldinu verður námsmat og námsmatsleiðir áfanga skoðuð með tillit til lærdómsviðmiða á hverju þrepi fyrir sig. 

Nýjum áföngum eða hugmyndum að nýjum áföngum verður einnig gefið gaum.

Hvar:

Námskeiðið verður haldið í húsnæði Framhaldsskólans við Ármúla en nánari leiðbeining kemur þegar nær dregur.

 

Úrvinnsla:

í lok námskeiðs ættu að liggja fyrir gögn um alla helstu áfanga og verða þessi gögn geymd á heimasíðu samtakanna í læstum hirslum sem félagsmenn hafa einir aðgang að.

 

Dagskrá:

12. ágúst

9:00-11:00

(m. pásu)

Guðrún Geirsdóttir

 

Ný framtíðarsýn, hæfnisþrep, lærdómsviðmið.  Hagnýt dæmi

 

11:00-12:00

Work-shop (undirbúningur)

Valdir áfangar teknir fyrir og þeir skoðaðir með tilliti til hugtakanna .  Skipting í hópa (hóparnir byggjast á áföngunum sem teknir verða fyrir).  Fyrstu skref (t.d. velja hópstjóra, kynni, ritara...)

12:00-13:00

Matur

 

13:00-15:00

Work-shop

Valdir áfangar teknir fyrir.  Þeim raðað í hæfnisþrepin og skilgreindir með tillit til þeirra (sjá viðauka 1)

15:00-16:00

Kynning

Hver hópur kynnir sína niðurstöðu

 

13. ágúst

9:00-11:30

(m. pásu)

Ýmsir kennarar

 

Nýjir áfangar, óhefðbundnir áfangar.  Hér er tækifæri fyrir kennara að kynna nýsköpun hverskonar og í kjölfarið yrði umræða um áfangana í hinu nýja kerfi.

11:30-12:30

Matur

 

12:30-14:30

(m.pásu)

Ingvar Sigurgeirsson

Þróun námsmats í anda nýrra áherslna.  Litið er á hvernig tengja megi þá umræðu við umræðuna um hæfnisþrepin frá því deginum áður. Praktísk dæmi.

14:30-15:30

Umræða og samantekt

 

 


 

___________________________________________________

Aðalfundur 2008
Samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara

 

Aðalfundur Samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara verður haldin laugardaginn 15. nóvember 2008 í Kennarahúsinu við Laufásveg 81.
Fundurinn hefst klukkan 18:00.  Boðið verður upp á léttar veitingar.

Dagskrá fundar

  1.  Skýrsla formanns
  2. Reikningar lagðir fram
  3. Kosning stjórnar
  4. Análl EFPTA
  5. Sumarnámskeið 2009
  6. Önnur mál

Félagsmenn eru vinsamlega beðnir að tilkynna þátttöku fyrir 10. nóv. n.k. á netfangið  laufey.ofeigsdottir@mk.is.

Stjórnin

 

-----------------------------------------------------------------

Sumarnámskeið

Hér eru drög að dagskrá fyrir sumarnámskeiðið.

Starfendarannsóknir og miðlun kennslugagna

Námskeiðið er ætlað sálfræði- og uppeldisfræðikennarar á framhaldsskólastigi. Umsóknarfrestur var til 7. apríl 2008. Á námskeiðinu verður fjallað um þróun kennsluhátta í sálfræði og uppeldisfræði. Safnað verður saman reynslusögum, verkefnum og öðrum kennslugögnum í sameiginlegan gagnagrunn og þannig stuðlað að því að þátttakendur geti bætt nám nemenda sinna með því að nýta sér reynslu annarra kennara.
Kynntar verða starfendarannsóknir, hugmyndafræði og aðferðarfræði. Þátttakendur fá aðstoð í framhaldinu við að móta eigin hugmyndir um hvernig þeir geta nýtt sér þessa aðferð við að rannsaka og þróa sína kennsluhætti.

Athugið: Kennarar eru vinsamlegast beðnir um að huga sem fyrst að verkefnum sem þeir eru tilbúnir að deila með öðrum kennurum á námskeiðinu.

Von bráðar kemur inn ítarlegri dagskrá um sumarnámskeiðið sem verður í lok maí. Inntak námskeiðsins mun vera starfendarannsóknir og PEEL.

Frekari upplýsingar um starfendarannsóknir og PEEL:

Greinargerð frá Hafþóri Guðjónssyni um starfendarannsóknir

Eygló Sigurðardóttir, kennari, hefur sett upp vef um PEEL

 

 

Eldri fréttir

Miklar annir hjá stjórn félagsins
Í ýmsu hefur verið að snúast hjá stjórn Samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara undanfarið ár. Fundur var haldin 30. janúar 2006. Á þeim fundi var farið yfir umsóknir til námsefnisgerðar í sálfræði og þar sem tveir stjórnarmeðlima voru umsækjendur var ákveðið að Kristján Ari og Aron tækju að sér matið.  Farið var yfir verkelýsingu fyrir sumarnámskeið 2006 fyrir upplýsingabækling Endurmenntunar HÍ.    Stjórnarfundur EFPTA í Amsterdam ræddur en þá var óvíst hver færi í stað Adísar með Kristjáni á þann fund.
Í apríl sl. fóru þeir Kristján Ari Arason og Aron T. Harladsson á stjórnfarfund og ráðstefnu hjá EFPTA sem haldinn var að þessu sinni í Amsterdam. Á fundinum var farið yfir starf EFPTA og samþykktir samtakanna. Þá var ákveðið að næsti stjórnarfundur yrði haldinn í Dortmund í Þýskalandi í byrjun nóvember. Í apríl er svo áætlað að halda fund og ráðstefnu í Reykjavík.
Stjórnarfundur var svo haldin 31. maí 2006.  Rætt var um fund EFPTA í Amsterdam sem Kristján Ari og Aron höfðu sótt í apríl 2006 og ákveðið að bíða með ákvörðun um áframhaldandi aðild að samtökunum þar til eftir fundinn í Reykjavík í apríl 2007.  Einnig var samþykkt að samtök sálfræði- og uppledisfræðikennara tækju þátt í kostnaði íslensku stjórnarmeðlimanna á fundi EFPTA erlendis. Sjá nánar um starfsemi EFPTA á heimasíðu samtakanan http://www.efpta.org
Í ágúst sl. var haldið endurmenntunarnámskeið fyrir sálfræði- og uppeldisfræðikennara á vegum stjórnar samtakanna í samvinnu við Endurmenntun Háskóla Íslands. Tókst afar til með námskeiðið.
Á næstunni mun svo stjórn samtakanna koma saman til fundar og undirbúa aðalfund árið 2006. Nánari upplýsingar verða sendar félagsmönnum síðar en gert er ráð fyrir að hann verði haldinn í nóvember næstkomandi.

Tillögugerð um hugsanlega styttingu náms til stúdentsprófs
Að ósk vinnuhóps menntamálaráðuneytis vegna áforma ráðherra um skerðingu á bóknámi til stúdentsprófs tóku Kristján Ari Arason og Aron T. Haraldsson að sér að fara yfir aðalnámskrá framhaldsskólanna og gera tillögu um breytinga á námsrká til samræmis við áðurnefndar breytingar. Tillögugerðin byggiðist á þeim sjónarmiðum sem Samtök sálfræði- og uppeldisfræðikennara hafa haft uppi, sbr. frétt hér neðar á síðunni. Í tillögugerðinni var rík áhersla lögð á að SÁL 103 yrði gerð að skyldugrein á félagsfræðabraut. Þá voru gerðar tillögur um minniháttar breytingar á áfangalýsinigum í sálfræði, uppeldisfræði og fjölmiðlafræði sem miðuðu að því að kennsl áfanganna lengdist um sem svarar einni viku. Nánari upplýsingar má fá hjá Kristjáni Ara Arasyni (krisara@bhs.is).

Íslenskir sálfræði- og uppeldisfræðikennarar í Evrópusamstarf
Samtök Sálfræði- og uppeldisfræðikennara á Íslandi gékk formlega til samstarfs við Evrópusamtök sálfræðikennara á fundi sem haldinn var í Cambridge á Englandi 5. til 7. nóvember síðastliðinn. Fulltrúar Íslands á fundinum voru þau Aldís Guðmundsdóttir, Lilja Ósk Úlfarsdóttir og Kristján Ari Arason. Á fundinum var Aldís kosinn ritari samtakanna og Kristjáni Ara var falið að sjá um að koma upp nýrri vefsíðu fyrir samtökin. Í stjórn voru einnig kjörinn þau Jari Honkala (forseti) frá Finnlandi, Dorothy Coombs (varaforseti) frá Bretlandi, Hans Reijnierse (varaforseti) frá Hollandi, Wolfgang Augustin (gjaldkeri) frá Þýskalandi, Pia Gehl Björnestad (ritstjóri) frá Danmörku og Joe Cocker meðstjórnandi frá Bretlandi. Næsti fundur samtakanna verður haldinn í vor í Kaupmannahöfn.
Stjórn Samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara á Íslandi samþykkti í haust að sækja um aðild að EFPTA (European Federation of Psycholoigy Teachers Association). Af hálfu kollega í Evrópu var umsókninni fagnað.Félagsmönnum á Íslandi var boðið að skrá sig til fararinnar en úr varð að þrír
fulltrúar stjórnar fóru á ársfundinn í Cambridge til að ganga frá aðildinni.
EFPTA var formlega stofnað í Helsinki 28. mars 2004 en þar hittust þá sálfræðikennarar f´rá Finnlandi, Eistlandi, Litháen Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi, Englandi, Norður Írlandi og Skotlandi. Tilgangur samtakanna er að auka samstarf og samráð framhaldsskólakennara og tryggja framgang fræðigreinarinnar í skólum viðkomandi landa. Samstarfið tekur meðal annars til námskrárgerðar, endurmenntunar, upplýsingamiðlunar um kennsluaðferðir, kennslugögn og próf, sameiginlegra rannsóknarverkefna, samstarfsverkefna, útgáfu fréttabréfs, gerð gagnabanka o. fl. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu EFPTA.
Á fundinum í Cambridge í nóvember kynnti hvert aðildarríki námskrá og skólakerfi viðkomandi lands með áherslu á hvernig sálfræðikennslu er háttað. Fundurinn var afar fróðlegur fyrir okkur Íslendinga enda kom þar í ljós að sálfræðikennsla á Íslandi er síst verri en annarsstaðar í álfunni. Í menntamálaráðuneytinu hafa menn sýnt Evrópuaðildinni áhuga og verður ráðuneytinu gerð grein fyrir ferðinni með sérstakri skýrslu. Nánar verður fjallað um þessa ferð síðar hér á vefnum og á aðalfundinum 20. nóvember.

Sjá Skýrslu um ferðina frá aðalfundi EFPTA
Sjá: Kynningaglærur samtakanna á fundi EFPTA


Stjórn Evrópusamtaka sálfræðikennara

Á heimasíðu http://www.nymenntastefna.is/ sem er á vegum Menntamálaráðuneytis segir:

Í lögum um framhaldsskóla koma fram ný hugtök um námslok og námsskipan framhaldsskóla. Eldri hugtök hafa einnig verið endurskilgreind í námskrárvinnu menntamálaráðuneytisins. Mikilvægt er að allir aðilar sem koma að framkvæmd og innleiðingu nýrra laga hafi sama skilning á merkingu þessarra hugtaka.“

Á aðalfundi Samtakanna sl. haust var það samþykkt einróma að félagsmenn myndu sýna frumkvæði í vinnu sem framundan er við innleiðingu nýrra laga og myndu standa vörð um fagið innan sinnar stofnunar.   Með þessa samþykkt að sjónarmiði höfum við í stjórn sett saman námskeið sem beinist að þessari vinnu.

 

----------------------------------

Ráðstefnur EFPTA

Frá ráðstefnu EFPTA í Cardiff (apríl 2008).

Frá ráðstefnu EFPTA í Bologna (nóvember 2007)

Frá ráðstefnu EFPTA í Reykjavík (apríl 2007)

-----------------------------

Málstofa sálfræðiskorar 19. nóvember

Málstofa sálfræðiskorar 26. nóvember.

 

Að rjúfa einangrun kennara


Föstudaginn 4. apríl var ráðstefna um starfendarannsóknir. Um 140 þátttakendur mættu á ráðstefnuna sem tókst í alla staði mjög vel.  Ráðtstefnan var haldin í Borgarholtsskóla og bauð skólinn alla aðstöðu sem var eins og best verður á kosið.

Á ráðstefnunni voru flutt sex erindi um starfendarannsóknir, tvö almenn inngangserindi og fjögur erindi þar sem kennarar lýstu starfendarannsóknum sínum. Fyrirlesarar voru Jean McNiff, prófessor við St. Mary´s University College í London, Hafþór Guðjónsson, dósent við Kennaraháskóla Íslands, Sigurbjörg Einarsdóttir, íslenskukennari við MH, Sjöfn Guðmundsdóttir, lífsleiknikennari við MS, Bolette Koch, náttúrufræðikennari við Þjórsárskóla og Ívar R. Jónsson sálfræðikennari við Borgarholtsskóla.

Í lok ráðstefnunnar var stofnað Félag um starfendarannsóknir á Íslandi.

Glærur og gögn frá ráðstefnunni eru á ráðstefnuvefnum: http://www.skolathroun.is/?pageid=45

 

 

Málstofa flutt til 9. apríl.

Af óviðráðanlegum ástæðum mun málstofu sálfræðiskorar sem halda átti 12. mars, þar sem Dr. Evald Sæmundsen átti að flytja erindið „Tengsl einhverfu og flogaveiki”, verða frestað til 9. apríl.