Samtökin
Samtök sálfræði- og uppeldisfræðikennara eru samtök þeirra kennara sem kenna sálfræði, upp-eldisfræði og skyldar greinar í framhalds-skólum landsins. Félagið heldur fræðslufundi og námskeið nokkuð reglulega. Félagsmenn fá upplýsingar um hvað er á döfinni í tölvupósti sem er orðin aðalsamskiptaleið stjórnar og félagsmanna. Vefur þessi er ein leiðin til að bæta upplýsingaflæði á milli félagsmanna.
Stjórn Samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara
Stjórn félagsins var kosin á aðalfundi sem haldinn var
Laufey Ófeigsdóttir formaður laufey.ofeigsdottir@mk.is
Harpa Hafsteinsdóttir gjaldkeri harpah@mh.is
Hildur Jóhannsdóttir ritari hildur@fa.is
Ívar Rafn Jónsson meðstjórnandi ivar@bhs.is
Ingibjörg Ó. Sigurðardóttir meðstjórnandi ingibjorg@fsu.is
Aðalfundur samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara, haldin 15. Nóvember 2008 í Kennarahúsinu við Laufásveg, kl. 18:00.
Fundarstjóri fundarins var Aldís Unnur Guðmundsdóttir. Fundarstjóri setti fundinn og bauð alla velkomna fyrir hönd stjórn félagsins.
1. Skýrsla formanns.
Laufey las skýrslu formanns og fundargerð síðasta aðalfundar sem borin var upp til samþykktar og félagsmenn samþykktu einróma.
2. Reikningar lagðir fram.
Aron T. Haraldsson gjaldkeri lagði fram endurskoðaðan efnahags- og rekstrarreikning félagsins. Félagsmenn samþykktu reikninga einróma. Endurskoðandi var Hulda Birna.
3. Kosning stjórnar.
Aron T. Haraldsson vék úr stjórn félagsins og eru honum þökkuð góð og óeigingjörn störf í þágu félagsins sl. ár. Ingibjörg Ó. Sigurðardóttir frá FSU kom inn sem meðstjórnandi og Harpa Hafsteinsdóttir stjórnarmeðlimur tók við gjaldkerastöðunni af Aroni. Laufey er áfram formaður og Hildur er áfram ritari ásamt því að hún tók að sér umsjón heimasíðu félagsins
4. EFPTA.
Harpa Hafsteinsdóttir kynnti EFPTA samstarfið, sagði frá síðustu fundum. Hún tilkynnti að Kristján Ari Arason hafi sagt sig frá skyldustörfum samtakanna en hann sá um heimasíðu þeirra. Honum voru þökkuð vel unnin störf. Harpa tók við starfi ritstjóra fréttabréfs EFPTA - nokkrar umræður sköpuðust um starfsemi EFPTA samtakanna og markmið með þátttöku félagsins í starfinu. Harpa kynnti komandi ráðstefnu sem verður í Edinborg 16-19 apríl þar sem sjónum er m.a. beint að "jákvæðri sálfræði". Margir fundarmanna lýstu yfir vilja til að sækja þá ráðstefnu og stefnt er á hópferð frá Íslandi. Stjórn félagsins lagði fram eftirfarandi tillögu: þar sem ákveðið var á síðasta aðalfundi að halda áfram samstarfinu við EFPTA leggur stjórn félagsins til að hún fái umboð aðalfundar til að tilnefna sinn fulltrúa til þátttöku á stjórnarfundum EFPTA. Tillagan var samþykkt samhljóma.
5. Sumarnámskeið 2009
Hildur Jóhannsdóttir tók að sér að sjá um sumarnámskeið 2009. Í ljósi væntanlegra breytinga á námskrá framhaldsskólastigsins er ætlunin að taka fyrir námsmat og var sú tillaga lögð fram af hálfu stjórnar. Jafnframt var óskað eftir tillögum fundarins um inntak sumarnámskeiðs og skapaðist mikil umræða. Úr varð að reynt verður að samræma eftirfarandi; nýjir straumar; jákvæð sálfræði - ný námskrá; breytt starfsumhverfi – námsmat
7. Önnur mál
Anna Jóna Guðmundsdóttir gekk fram og hélt erindi um "jákvæða sálfræði". Anna Jóna hefur kynnt sér þau fræði undanfarin misseri og ætlar að búa til áfanga með því inntaki. Hún tilkynnti að hún hygðist sækja um styrk til Menntamálaráðuneytis vegna námsefnisgerðar honum tengdum og óskaði eftir stuðningi fundarins við umsókn sína. Fundarmenn lýstu yfir stuðningi sínum. Kristján Ari lagði til að stjórn félagsins myndi beita sér fyrir því að sálfræðikennarar í framhaldsskólum myndu koma að málum Lífsleikninnar innan sinna skóla. Laufey minnti á lokadagsetningu umsókna til námsefnisstyrkja sem er 24. Nóvember. Guðmunda hvatti félagið til að hvetja sína félagsmenn til að nýta breytingarnar sem væntanlegar eru innan framhaldsskólastigsins og halda vel á spöðunum. Að félagsmenn ættu að vera sýnilegir í mótun námskrá sinna skóla gagngert til að hafa áhrif.
Ekki var fleira rætt og fundi var slitið kl. 20:00
Fundargerð ; Hildur
|