Heimasíða samtakann er http://www.efpta.org
Ekki náðist að ræða alla þessa
liði á fundinum en þó var komið að þeim
flestum.
Þá
tttakendur gerðu grein fyrir sálfræðikennslu í sínu
landi og bar þar e.t.v. hæst að sálfræðikennsla
virðist vera bæði fastari í sessi
og vaxandi í öðrum Evrópulöndum.
Sálfræðikennsla á grunn- og framhaldsskólastigi í Evrópu
Í
Finnlandi hefur sálfræði verið kennd
síðan í seinni heimstyrjöldinni þegar
hún var nefnd sálarvísindi. Þar
kjósa 80% nemaenda á grunnskólaaldri
að læra sálfræði. Í menntaskóla
verður sálfræði skildugrein frá og
með árinu 2005 og hún er mjög vinsæl
grein á háskólastigi. Félag
sálfræðikennara í Finnlandi var
stofnað 1971 og telur nú 500 meðlimi sem
aðallega kenna í menntaskólum.
Í Englandi, Walse og N-Írlandi er sálfræði
ekki vinsæl hjá 14 til 16ára en áhugi
fer vaxandi á þessu aldursstigi. Á menntaskólastigi
geta nemendur valið hefðbundna eða hagnýta
sálfræði og hún er langvinsælasta
greinin á þessu stigi. Það er alvarlegur
skortur á menntuðum sálfræðikennurum
fyrir þetta skólastig. Um 40.000 nemendur
námu sálfræði á menntaskólastigi
2003 (Advanced level). Sálfræðikennarafélagið telur
um 1000 meðlimi og heldur ráðstefnu árlega.
Næsta ráðstefna félagsins verður í Swansea
University 7. – 10. júlí 2005.
Hollenski þátttakandinn á fundinum
var málsvari verkmenntunarskóla þar
sem m.a. er kennd félagsráðgjöf
og aðrar heilsugæslugreinar. Þessir nemendur
taka 210 tíma af sálfræði sem jafngildir
7 ½ ECTS. Þessir nemendur eru á aldrinum
16 – 21 árs. Lögð er áhersla á lausnarleitarnám.
Í Danmörku er menntakerfið mjög ólíkt því sem
við eigum að venjast en verið er að samræma það við Evrópu
svo núverandi kerfi verður allt breytt að ári.
Nemendur hafa mikla möguleika á að læra
sálfræði áður en þeir
fara í háskóla. Nemendur geta haft áhrif á innihald
og form kennslunnar. Þemakennsla og hópavinna
eru mikilvægur liður í náminu og
námsmat er fjölbreytt. Próf eru einungis
munnleg. Athygli vekur að lögð er áhersla á að nemendur
nái tökum á breiðum kenningarlegum
grunni og geti beitt þessum kenningum í greiningu.
Kenningarnar sem eru kenndar eru: Sálgreining (Freud,
Jung og Erikson), hugfræði (Piaget og Vygotsky),
Félagsleg (Bandura og Bordieu) og Atferlisfræði
(Pavlov og Skinner) en ekki virðist vera kennd lífeðlisfræði á þessu
stigi innan sálfræðinnar.
Í Þýskalandi er munur á menntun
milli héraða. Þannig hefur fólk
farið í háskóla eftir 12 ár í sumum
héruðum en 13 í öðrum. Verið er
að koma á samræmi þannig að 2007
verða inntökuskilyrði í háskóla
12 ár allstaðar í Þýskalandi.
Framhaldsskólar eru ýmist bóknámsskólar
eða verknámsskólar. Staða sálfræðinnar
innan skólakerfisins er mjög mismunandi eftir
héruðum og eftir skólum. Félag
sálfræðikennara í Þýskalandi
var stofnað 1978 í Northrhine-Westfalia, þá aðallega
fyrir framhaldsskólakennara þar sem greinin
var ný. 1983 varð félagið að landsamtökum
fyrir Vestur Þýskaland og verkmenntaskólarnir
bættust við. 1991 urðu til samtök í Austur Þýskalandi
til að stuðla að kennslu í greininni þar. Þetta
tókst í Brandenburg og Schsen-Anhalt. Nú eru þessi
samtök smám saman að verða landsamtök
fyrir allt landið. Stjórn samtakanna er skipuð 5
meðlimum og smærri deildir eru víðsvegar
um landið. Félagar í landssamtökunum
eru 604.
Ekki var þátttakandi frá Eistlandi í þetta
sinn en á heimasíðu félagsins
kemur fram að þar er sálfræði
skildugrein á 10. og 11. ári grunnskóla
og í verknámsskólum. Sálfræði
er kennd af skólasálfræðingum og
fólki með háskólagráðu í sálfræði
en ekki sérstaklega menntuðum sálfræðikennurum.
Sálfræðin er vinsæl grein þó ekki
séu formleg próf í henni.
Kosning stjórnar EFPTA
Kosin var stjórn fyrir Evrópusamtök
sálfræðikennara (EFPTA, European Federation
of Psychology Teachers´Associations). Þar
komu Íslendingar
sterkir inn þar sem Aldís Guðmundsdóttir
var kosin ritari samtakanna og skorað var á Kristján
Ara Arason að taka að sér að hanna
og sjá um vefsíðu samtakanna. Forseti
samtakanna er Jari Honkala frá Finnlandi, varaforsetar
eru Dorothy Commbs frá Bretlandi og Hans Reijnierse
Hollandi, gjaldkeri
er Wolfgang Augustin frá Þýskalandi,
umsjón fréttablaðs
er í höndum Piu Gehl Björnestad frá Danmörku
og sérstakur ráðgjafi stjórnar
er Joe Cocker frá Bretlandi.
Merki EFPTA
Kosið var um merki fyrir samtökin og varð hringlaga
merki í litum Evrópubandalagsins (gult og
blátt) fyrir valinu.
Verkefni framundan
Næsta verkefni EFPTA er stjórnarfundur sem
haldinn verður í Kaupmannahöfn 15. – 17.
apríl 2005. Meðal verkefna sem þarf að vinna
er að leita að fjármögnun innan Evrópusamtöksins
til að halda ráðstefnu sem áformað er
að hafa í Barcelona í október
2005.
Evrópfélag sálfræðinga (EPTA)
hefur lýst ánægju yfir stofnun EFPTA
og boðið samtökunum að vera deild innan
EPTA. EPTA mun halda ráðstefnu á Granada á Spáni
dagana 3. – 8. júlí 2005. Upp kom hugmynd
um að taka þátt í þeirri
ráðstefnu sem félagsdeild innan samtakanna
og þá 4. júlí.