Lög
Samtaka sálfræði- og uppeldisfræðikennara
Samþykkt á stofnfundi
8. okt 1983 og breytt 20. okt 1989.
Lög fyrir Samtök sálfræði og uppeldisfræðikennara.
1. gr.
Félagið heitir
Samtök sálfræði
og uppeldisfræðikennara.
2. gr.
Markmið samtakanna er að efla kennslu í sálfræði
og uppeldisfræði á öllum skólastigum.
Markmiði þessu hyggst félagið ná:
- með því að stuðla að bættum
starfsskilyrðum þeirra sem kenna sálfræði,
námstækni og uppeldisfræði.
- með því að fylgjast með nýjungum í þessum
greinum og stuðla að því að kennarar taki
virkari þátt í að móta kennsluna,
inntak hennar og aðferðir.
- með því að láta sig varða menntun
sálfræði og uppeldisfræðikennara.
- með því að hafa samvinnu við þá sem
semja námsskrár og námsefni í þessum
greinum.
- með því að leita tengsla við kennara
og kennarafélög erlendis t.d. með kynnisferðum.
- með því að stuðla að endurmenntunarnámskeiðum,
ráðstefnuhaldi og afla upplýsinga um námskeið erlendis.
3. gr.
Félagssvæðið er landið allt.
4.gr.
Allir
sem fást við kennslu í námstækni,
sálfræði og uppeldisfræði á framhaldsskólastigi
geta orðið félagsmenn.
5. gr.
Stjórn félagsins skipa 3 menn, formaður, ritari
og gjaldkeri. Skulu þeir kosnir til eins árs í senn.
Stjórnin skipti með sér verkum. Einnig skulu kosnir á aðalfundi þrír
varamenn í stjórn og tveir endurskoðendur. Ef atkvæði
falla jöfn skal varpað hlutkesti.
6. gr.
Stjórnin getur sett nefndir til ýmissa starfa og gengist
fyrir stofnun deilda og/eða starfshópa eftir þörfum.
7. gr.
Aðalfund skal halda árlega í október. Á dagskrá skal
vera:
a)
skýrsla stjórnar
b) lagabreytingar
c) reikningar
d)
kosning stjórnar
e) ákvörðun félagsgjalda
f) önnur mál
Einfaldur
meirihluti ræður úrslitum mála.
8. gr.
Stjórnin getur boðað til aukafunda. Auk þess
getur fjórðungur félagsmanna krafist aukafundar.
9. gr.
Lögum verður aðeins breytt á aðalfundi.
Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn eigi síðar
en 15. september. Allar tillögur um lagabreytingar skal kynna í fundarboði.
Boða skal aðalfund með 2ja vikna fyrirvara.
|