Umhverfisvefur BHS

 

 

Þú hefur heiminn í höndum þér.

Um umhverfisvefinn

Dagskrá umhverfidaga

· Mánudaginn 28. mars klukkan 13:20 Heimskaffi í stofu 103 – allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

· Þriðjudaginn 29. mars klukkan 13:20 Hjólaáætlun Reykjavíkur kynnt í stofu 103. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

· Miðvikudagurinn 30. mars “Hvað lagðist til mikið rusl yfir umhverfisdaga” Rusli safnað saman á sal.

· 29. – 31. mars: Sýning um Jarðarsáttmálann á gagni 1. hæð í bóknámshúsi.

· 29.— 30. mars: Umhverfisráð og stuttmyndir á sal.

 

Umhverfisdagar í Borgarholtsskóla 29.-30. mars 2011

Dagana 29.—30. mars verða umhverfisdaga í skólanum. Að þessu sinni eru dagarnir helgaðir sjálfbærri þróun og umgengni. Nákvæmari dagskrá fyrir dagana verður birt hér á næstunni en kennarar eru hvattir til að fjalla um þetta efni í kennslu á meðan dagarnir standa. Þeir geta valið þennan tengil til þess að fara á síður sem geyma gagnlegar upplýsingar sem nota má við kennslu.

 

Vefurinn

Þessar síður eru tileinkaðar umhverfismálum og hugmyndafræði sjálfbærar þróunar. Vefurinn er mikilvægt skref í framkvæmd þeirrar umhverfisstefnu sem Borgarholtsskóli fylgir. Hann geymir m.a. upplýsingar um stefnuna og þau umhverfisverkefni sem unnið er að hverju sinni í skólanum. Vefnum er ætlað að miðla upplýsingum til nemenda, starfsmanna og almennings um gagnleg ráð til að bæta umgengi við náttúruna og auðlyndir hennar. Allar ábendingar um efni má senda á Kristinn A. Guðjónsson, ritstjóra vefarins, en netfang hans er  kristinn@bhs.is

 

Hvers vegna umhverfisstefna?

Í stefnuskrá skólans segir m.a. að hlutverk hans sé að ... efla með nemendum mannskilning, tillitssemi og virðingu fyrir fólki, náttúru og umhverfi.

Það er því ljóst að eitt að veigamiklum hlutverkum skólans er að efla  vitund nemenda fyrir umhverfinu og verndun þess.

Hver eru markmiðin?

Í umhverfisstefnu skólans felast m.a. eftirfarandi markmið.  Að .....

· glæða skilning nemenda á náttúrunni og nauðsyn góðrar umgengni við hana.

· auka þekkingu nemenda á sjálfbærri þróun og hófsamri nýtingu auðlinda.

· hvetja nemendur til, og skapa þeim tækifæri til útivistar í íslenskri náttúru.

· stuðla að góðri umgengni nemenda og starfsmanna um sitt nánasta umhverfi.

· efla skilning nemenda á mengunarvöldum og forvörnum á því sviði.

· stuðla að aukinni ábyrgð og þekkingu starfsmanna á umhverfismálum.

 

Hvaða leiðir förum við í framkvæmd stefnunnar?

Leiðir að þessum markmiðum eru m.a. fólgnar í námsáætlunum í lífsleikni, skýrum reglum í verknámshúsum um meðferð spilliefna, samvinnu við samtök um gróðurvernd og reglulegar gróðursetningaferðir. Í íþróttaáföngum er regluleg útivist, m.a. gönguferð á Esju og nýnemar fara allir í haustferðir um Suðurland, einkum í Þórsmörk.  Á náttúrufræðibraut er lögð áhersla á dagsferðir með nemendum í jarðfræði og líffræði.  Þar er hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar fléttuð inn í námið þar sem færi gefst.  Á iðnnámsbrautum eru sérstakir áfangar sem styðja umhverfisstefnuna.

Vel er hugað að gróðri og góðri umgengni á lóð skólans og hún hreinsuð reglulega, auk þess sem regluleg umhirða plantna utan sem innan skólans er tryggð. Þá er hefð að hver nemandi sem útskrifast frá skólanum fær með prófskírteini litla birkiplöntu til gróðursetningar.

Í skólareglum er skýrt kveðið á um góða umgengni nemenda um skólann, m.a. að nemendur eru ekki á útiskóm í kennsluhúsnæði og göngum skólans og því fylgt fast eftir.  Öll efni til ræstingar eru vistvæn.

Kennarar og aðrir starfsmenn eru styrktir til þátttöku á námskeiðum og ráðstefnum sem lúta að umhverfisvernd, bæði til eflingar kennslu og bættrar eftirfylgni umhverfisvænnar stefnu.

Skólinn hefur fengið þá umhverfisvottun sem fólgin er í Grænfánanum.