Vissir þú?
Maraþonhlauparar
Starfsmenn skólans sinna ýmsum hugðarefnum í frístundum sínum og eru hlaup og fjallgöngur ofarlega á lista hjá mörgum. Nokkrir kennarar hafa lagt land undir fót til að taka þátt í maraþonhlaupum víða um heim. Enskukennararnir Sólrún og Ásta Laufey tóku þátt í Bostonmaraþoninu vorið 2008 og Halla Karen íþróttakennari var meðal þúsunda þátttakenda í New York maraþoni sama haust. Jóhanna stærðfræðikennari og Lilja enskukennari hlupu maraþon í Berlín haustið 2007 og endurtóku leikinn í Kaupmannahöfn vorið 2008.


