bókmennt, handmennt, siðmennt

Fréttir

Kynningarfundur um afreksíþróttasvið skólans

15.4.2009

Körfuboltahópur

Mánudaginn 20. apríl kl. 19:30 verður haldinn kynningarfundur fyrir afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla í knattspyrnu, körfuknattleik, golfi og skíðum. Fundurinn verður haldinn í sal skólann, rétt innan við aðalinngang.

Borgarholtsskóli býður  upp á afreksíþróttasvið í knattspyrnu, körfuknattleik,  golfi og skíðum. Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er (félagsfræði-, mála-, náttúrufræði- og viðskipta og hagfræðibraut).

Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Fjórar námseiningar á önn.

Kröfur til nemenda :

  • Að hafa stundað íþrótt sína í nokkur ár og vera virkur iðkandi í íþróttafélagi.
  • Að hafa staðist grunnskólapróf
  • Vera vímuefnalaus íþróttamaður/íþróttakona.
  • Geta tileinkað sér hugarfar og lífsstíl afreksíþrótta.
  • Standast eðlilega námsframvindu og ljúki u.þ.b. 15-19 einingum á önn.
  • Gerð er krafa að nemendur hafi a.m.k. 95% skólasókn í öllum námsgreinum.

Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið verður innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld.

Frábær kennsluaðstaða:

  • Egilshöll – íþróttahús Fjölnis
  • Korpúlfsstaðir - Básar


Umsókn

Nemendur sækja um bóknámsbraut rafrænt.
Umsóknareyðublað fyrir Afreksíþróttasvið er á vef skólans (undir Nám í boði > Bóknám til stúdentsprófs http://bhs.is/namid/brautir/boknam/afreksithrottasvid) eða á skrifstofu skólans. Skil á umsóknum er 15. maí – 11. júní.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Bjarni Jóhannsson
Verkefnisstjóri afreksíþrótta BHS
Sími 896 8566
bjarni@bhs.is

Fótboltahópur

Senda grein



Listnám

Borgarholtsskóli er einn af yngri framhaldsskólum landsins. Hann hefur frá upphafi kynnt ýmsar nýjungar í skólastarfi sem eru afrakstur markvissrar þróunarvinnu. Í skólanum er fjölbreytt námsframboð sem endurspeglast í fjölbreyttum nemendahópi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica