Fréttir
Íþróttafólk óskast
Nemendaráð og íþróttakennarar auglýsa eftir nemendum til að taka þátt í íþróttakeppnum fyrir hönd skólans.
Framundan eru keppnir milli framhaldsskóla í sundi, frjálsum íþróttum og í fleiri greinum. Einnig verður framhaldsskólahreysti í Smáranum 19. mars.
Við biðjum öflugt íþróttafólk að hafa samband við nemendaráð (nfbhsformadur@gmail.com), Höllu Karen eða aðra íþróttakennara.
Keppnirnar eru liður í íþróttavakningu framhaldsskólanna sem má lesa meira um á síðunni http://www.menntamalaraduneyti.is/menntamal/framhaldsskolar/vakning/


