bókmennt, handmennt, siðmennt

Fréttir

Skólameistari kveður

26.4.2010

Bryndís og Ólafur

Á miðvikudag var haldið kveðjuhóf fyrir Ólaf Sigurðsson fráfarandi skólameistara. Hann hefur verið í leyfi frá skólanum á þessu skólaári en hefur nú ákveðið að flytja sig alfarið til Mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem hann hefur unnið síðastliðið ár.

Fjölmargir starfsmenn mættu í boðið til að heiðra og kveðja Ólaf. Sönghópur Borgarholtsskóla, undir stjórn Braga kórstjóra, flutti nokkur lög við góðar undirtektir. Í kveðjuskyni var Ólafi færð bókin Jöklar á Íslandi.  Jafnframt var honum óskað velfarnaðar í nýju starfi.

Embætti skólameistara hefur verið auglýst laust til umsóknar en Bryndís Sigurjónsdóttir hefur sinnt því starfi meðan Ólafur var í leyfi.

Sjá auglýsingu um starfið: http://www.starfatorg.is/serfr_stjornun/nr/13053

Bragi stjórnar söng
Bryndís afhendir Ólafi bókina
Starfsfólk í kveðjuhófi
Hlustað á söng

Senda grein



Listnám

Borgarholtsskóli er einn af yngri framhaldsskólum landsins. Hann hefur frá upphafi kynnt ýmsar nýjungar í skólastarfi sem eru afrakstur markvissrar þróunarvinnu. Í skólanum er fjölbreytt námsframboð sem endurspeglast í fjölbreyttum nemendahópi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica