Fréttir
Ljóðasamkeppni á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember
|
Hvítt ljóð Hvít stofa, bláir stólar Höfundur: Júlí Heiðar Halldórsson |
Ummæli dómnefndar: Í þessu ljóði er ljóðmælandi ekki viss hvar hann er, hann ruglar saman skólastofunni sem hann situr í ásamt bekkjarfélögum sínum og sjúkrastofu. Skemmtileg pæling í umhverfinu og hvað er líkt með þessum tveimur stofnunum, skóla og sjúkrahúsi. |
|
Undarlegt einelti Á meðan myndvarpinn var að kitla mig Ég horfi á sjónvarpið Höfundur: Ægir Þór Steinarsson |
Ummæli dómnefndar: Hér öðlast skólahúsgögnin og kennslutækin sjálfstætt líf í vel gerðum persónugervingum. Ljóðmælandi upplifir umhverfið fjandsamlegt, skólinn leggur hann í einelti og ræður öllu. Klukkan getur meira að segja stöðvað tímann. Heima er sama sagan, sjónvarpið og fjarstýringin öðlast eigið líf og gera líf hans ömurlegt. Hann leitar að björgun en er búinn að tapa trúnni áður en hann ber fram óskina um hjálp. |
|
Gengur einn um gangana. Höfundur: Magdalena Gunnarsdóttir |
Ummæli dómnefndar: Nafnleysi ljóðsins undirstrikar einsemd ljóðmælanda sem er sniðgenginn eða ennþá verra; aðhlátursefni. En í einsemdinni og útilokuninni er að finna styrk, hann trúir á sjálfan sig og kærir sig kollóttan um þá sem veitast að honum.
|

