bókmennt, handmennt, siðmennt

Fréttir

Samsýning allra skólastiga - Handverkshefð í hönnun

24.9.2007

Hönnun í Norræna húsinu

Nemendur í SJL 203 á vorönn 2007 hjá Kristveigu tóku þátt í verkefni á vegum Heimilisiðnaðarfélags Íslands þar sem unnið var út frá handverkshefð í hönnun. Sýningin var opnuð nú um helgina og má segja að verkefni okkar nemenda hafi vakið mikla athygli. Á sýningunni sýna grunnskólar, framhaldsskólar, Listaháskóli Íslands auk fleiri aðila afrakstur verkefna sem unnin voru skólaárið 2006-2007.

Sýningin er í Norræna húsinu og er opin sem hér segir:
þriðjudaga – fimmtudaga kl. 12-23
föstudaga – sunnudaga kl. 12-17
mánudagar: lokað
Aðgangur er ókeypis.

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins: http://www.heimilisidnadur.is/index.php?content=conf2007&sub_content=displays



Senda grein



Listnám

Borgarholtsskóli er einn af yngri framhaldsskólum landsins. Hann hefur frá upphafi kynnt ýmsar nýjungar í skólastarfi sem eru afrakstur markvissrar þróunarvinnu. Í skólanum er fjölbreytt námsframboð sem endurspeglast í fjölbreyttum nemendahópi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica