Fréttir
Útskrift frá Borgarholtsskóla 20. desember 2006
Miðvikudaginn 20. desember voru útskrifaðir 85 nemendur frá Borgarholtsskóla af ýmsum brautum skólans. Síðastliðið haust voru innritaðir um 1400 nemendur í skólann, í dagskóla, kvöldskóla, síðdegisnám og dreifnám. Skólahúsnæðið er varla nógu stórt til að taka við slíkum fjölda, því voru nokkur þrengsli í skólanum og sumir hópar fullstórir.
Fjölmargir nemendur fengu verðlaun fyrir góðan námsárangur og félagsstöf við útskriftina. Hæstu einkunn á stúdentspófi fékk Björg Hákonardóttir af náttúrufræðibraut.
Ræðumaður útskriftarnemenda var Leifur Leifsson af félagsfræðibraut. Sönghópur Borgarholtsskóla söng við athöfnina. Þorsteinn Karl Guðlaugsson kennari í málm- og véltæknigreinum lét af störfum vegna aldurs og var honum þakkað fyrir góð störf í þágu skólans, en hann hefur starfað við hann frá upphafi.
Í ræðu sinni til útskriftarnema lagði Ólafur Sigurðsson skólameistari út frá orðunum: Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. En Ólafur fer nú í ársleyfi og Bryndís Sigurjónsdóttir aðstoðarskólameistari tekur við skólastjórn í fjarveru hans.




