Síðdegisnám
Í síðdegisnámi er kennt á tveimur brautum þ.e. braut fyrir Aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum og Félagsliðabraut - BRÚ. Námið fer fram samkvæmt reglum um kvöldskóla.
Kennsla fer fram eftir kl. 15 þrjá til fjóra daga í viku og kennslutímabilið (önnin) er 14 vikur. Skipulagið gerir ráð fyrir að nemandur taki 8-10 einingar á hverri önn.
Innritunargjald kr. 6.000,-
Einingagjald kr. 3.000,-
Matsgjald kr. 2.000,-*
* Matsgjald greiðist ef umsækjandi vill láta meta aðra skóla, námskeið eða starfsreynslu.
Nám fyrir stuðningsfulltrúa, skólaliða og leiðbeinendur í leikskóla grunnskólum er ætlað að veita fjölþætta þekkingu á sviði uppeldis og kennslu. Námsleiðin er þríþætt þ.e.
- fyrir skólaliða 36 einingar
- fyrir leiðbeinendur í leikskólum 71 eining
- fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum 73 einingar.
Námi á Félagsliðabraut-BRÚ er ætlað veita fjölþætta þekkingu sem eykur skilning og færni nemenda við að veita fólki sérhæfða þjónusta og styrkja það til aukinnar þátttöku á flestum sviðum í daglegu lífi. Um er að ræða styttri námsleið fyrir fólk sem orðið er 22ja ára og er með talsverða reynslu á starfssviðinu, um 3 ár. Námið er 32 einingar.
