Forsíða
Áætlun
Námsgögn
Verkefni
Tenglar

UMÖ 101 Umsjón og öryggi
Almennar upplýsingar

Mikilvæg skilaboð:

Áfangalýsing
Í áfanganum er fjallað um umhverfið og einstaklingana í umhverfinu. Fjallað er um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, vinnuslys og vinnuvernd. Farið er í skipulag heimilis og vinnustaða. Kynntar eru þær fjölmörgu og mismunandi hættur sem leynast í umhverfi fólks og leiðir til að koma í veg fyrir slys og óhöpp. Farið er yfir öryggi á heimilum og vinnustöðum með áherslu á slys af völdum innanstokksmuna, innréttinga, rafmagns- og rafmagnstækja, elds, vatns, glers og eitrana af ýmsu tagi. Fjallað er um notkun öryggishnappa, útgönguleiðir og kennt að nota mismunandi tegundir slökkvitækja. Því næst er fjallað um hættur utan dyra. Farið er í viðbrögð við óhöppum og slysum og forvarnir gegn þeim. Leiðbeint verður um öryggisúttekt á nánasta umhverfi og rætt um hver beri ábyrgð á öryggismálum á hverjum stað. Fjallað er um varnarviðbrögð við ofbeldi og hvernig nálgast skuli árásargjarna einstaklinga. Farið er í framkomu, nálgunaraðferðir og viðbrögð.

ÖRYGGISVEFUR:
> Slysavarnir barna - Árvekni
> Forvarnarhús
> Forvarnir VÍS
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 


Áfangamarkmið
Nemandi:
• þekki helstu tegundir slysa í heimahúsum, vinnustöðum og utan dyra.
• viti til hvaða ráðstafana er hægt að grípa til að koma í veg fyrir slys og óhöpp.
• þekki búnað til að koma í veg fyrir slys innan- og utanhúss sem taki mið af þörfum og aðstæðum notenda þjónustunnar.
• skilji mikilvægi fræðslu til að fækka slysum og óhöppum.
• þekki hvernig á að bregðast við slysum.
• viti hvaða lög og reglugerðir gilda um öryggi og hollustuhætti á heimilum, vinnustöðum og annars staðar.
• kynni sér lög og reglugerðir um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, vinnuslys og vinnuvernd
• geti framkvæmt öryggisúttekt á heimili.
• þekki algengar tegundir af slökkvitækjum og kunni að nota þau.
• geti metið þörf fyrir aðstoð.
• þekki helstu varnarviðbrögð við ofbeldi.
• þekki helstu aðferðir við að nálgast árásargjarna einstaklinga.


Kennsluefni
Óttar Ólafsson: Ofbeldi á vinnustöðum. Fæst hjá kennara.
Annað fjölritað efni og efni á Internetinu.

Efnisatriði
Umhverfi, aðbúnaður, vinnuvernd, slys, öryggi, slysavarnir, forvarnir, skipulag heimilis,innanstokksmunir, innréttingar, rafmagnstæki, reykskynjarar, slökkvitæki, hreinsiefni, eiturefni,geymsla á lyfjum og öðrum hættulegum efnum, réttur notenda, réttur starfsmanna,öryggisúttekt, öryggishnappar, öryggisfyrirtæki, nálgunaraðferðir, ofbeldi og áreitni, framkoma, klæðnaður, lög um vinnuvernd og vinnueftirlit.

Námsmat
Gerð eru nokkur smærri verkefni í áfanganum og gilda þau 60% af lokaeinkunn. Einnig þurfa nemendur að svara völdum spurningum úr Ofbeldi á vinnustöðum sem gilda 40%. Ef einkunn í báðum verkefnum (meðaltal) er undir 6,0 þurfa nemendur að fara í próf í námsefninu í desember.

© 2003-2005 Óttar Ólafsson. Síðast uppfært 30.08.2010