| FRÉTTIR |
|
13.10.2008
Fréttabréf SIEC-ISBE fyrir september getur þú
nálgast hér. |
|
| Nýjar
kennslugreinar á viðskipta- og hagfræðibraut
Sumarnámskeið
SKVOH í Verzlunarskóla Íslands 12. september
2008
Ertu búin/n
að skrá þig á sumarnámskeið SKVOH?
Er ekki hressilegt að byrja nýtt skólaár
með því að hitta gamla og nýja félaga
sem eru að kenna vítt og breitt um landið? Námskeiðið
verður haldið í Græna salnum (sama stað
og Norðurlanda-ráðstefnan var í nóvember
2006) í Verzlunarskóla Íslands föstudaginn
12.sept. kl. 12:00-19:00.
Skráning er rafræn á heimasíðu Endurmenntunar
HÍ: >>> Skráning
á námskeið
Umsóknarfrestur
var til 1.september en hægt er að skrá sig fram
til 8. september. Þegar smellt er á "Sækja
um" er mikilvægt að merkja við að
greiðslumáti sé "greiðsluseðill"
þó svo að námskeiðið sé félagsmönnum
að kostnaðarlausu.
Dagskrá:
12:00-14:00 Fjármál
og Excel. Oddur Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Glitni.
14:10-16:00 Reikningshald og skattskil. Bjarni Frímann Karlsson,
lektor í HÍ.
16:00-16:30 Kaffi
16:30-17:30 Leikir í frumkvöðlakennslu. G. Ágúst
Pétursson, Frumkvöðlafr.
17:30-19:00 Aðalfundur SKVOH og kvöldmatur í Verzlunarskóla
Íslands
Samlokur
í boði SKVOH í upphafi námskeiðs við
inngang Græna salarins.
Hvetjum
alla til að mæta.
Stjórn Samtaka kennara í viðskipta- og hagfræðigreinum |
|
15.05.2008
Ráðstefnuhaldarar í Waterford á Írlandi,
þar sem næsta alþjóðlega
ráðstefna SIEC-ISBE verður haldin 27. júlí
til 1. ágúst, hafa ákveðið að framlengja
umsóknir á lægra ráðstefnugjaldinu,
575 €, til 1. júní. Grípið tækifærið
og skellið ykkur á fróðlega og skemmtilega ráðstefnu
á Írlandi. Eftir 1. júní hækkar
ráðstefnugjaldið. |
|
2.05.2008
Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál
(RSE) hefur ákveðið að ráðast í
gerð námsefnis í hagfræði, sem einkum
geti nýst til kennslu í framhaldsskólum. Ákveðið
hefur verið að efna til hugmyndasamkeppni um hvernig slíkt
námsefni yrði best úr garði gert og hvetur RSE
sérstaklega til þátttöku kennara í
viðskipta- og hagfræðigreinum.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir bestu
tillögurnar. Nánari upplýsingar um samkeppnina
má fá hér. |
|
17.04.2008
Nú fer hver að verða síðastur að skrá
sig á árlega ráðstefnu SIEC-ISBE í
Waterford á Írlandi áður en ráðstefnugjaldið
hækkar 1. maí. Munið eftir því að
hægt er að sækja um styrk í Vísindasjóð
KÍ til fararinnar. |
|
21.02.2008
Fréttabréf SIEC-ISBE getur þú nálgast
það hér. |
|
23.01.2008
Ákveðið var á stjórnarfundi að halda
haustnámskeið félagsins í Endurmenntun HÍ
föstudaginn 12. september 2008 kl. 12:00-18:00. Að námskeiðinu
loknu verður aðalfundur félagsins kl. 18:00-19:00 og
svo matur í boði SKVOH kl. 19.00. |
|
19.11.2007
Petra Bragadóttir formaður SKVOH og Guðlaug Nielsen
gjaldkeri fóru á Norðurlandaráðstefnu
SIEC-ISBE sem haldin var í Gautaborg í Svíþjóð
dagana 16.-18. nóvember. Meginþema ráðstefnunnar
var Gautaborg: Borg viðburða og þjónustustjórnun.
|
|
19.11.2007
Ísland mun eiga einn af varaforsetum SIEC-ISBE í stjórnarnefnd
samtakanna næstu tvö árin eftir að Petra Bragadóttir
formaður SKVOH tók við af Herbjörn Simonsen
frá Noregi sem fulltrúi Norðurlandanna í
ágúst síðastliðnum. |
|