Margmiðlunarhönnun
Nám í margmiðlunarhönnun veitir góðan undirbúning undir myndlistar- og hönnunarnám á háskólastigi eða aðra sérskóla á sviði lista og hönnunar. Því lýkur með listnámsbrautarprófi sem tekur að jafnaði 3 ár (105 einingar). Það skiptist í kjarna (79 einingar), kjörsvið (23 einingar) og bundið val (3 einingar). Í kjarna eru bóklegar greinar framhaldsskóla, kjarnagreinar listnámsbrautar auk sérgreina margmiðlunarhönnunar. Nemendur velja síðan annað tveggja kjörsviða í margmiðlunarhönnun: Prent- og skjámiðlun,eða Fjölmiðlatækni. Í prent- og skjámiðlun þjálfast nemendur sérstaklega á sviði tvívíðra miðla, ljósmyndunar, myndlýsingar, umbrots og vefhönnunar. Í fjölmiðlatækni miðar námið að því að þjálfa nemendur til alhliða tæknistarfa á fjölmiðlum, útvarpi, sjónvarpi og í kvikmyndun. Að listnámsbrautarprófi loknu eiga nemendur þess kost að taka viðbótarnám til stúdentsprófs, 35 einingar, á einu ári. Viðbótarnámið felur í sér bóklega viðbót til stúdentsprófs (15 einingar), bóklegt kjörsvið til stúdentsprófs (12 einingar), bundið val (3 einingar) og frjálst val (5 einingar). Að loknu listnámsbrautarprófi geta nemendur sótt um nám í listaháskólum en flestir listaháskólar krefjast stúdentsprófs. Flestir listaháskólar krefjast jafnframt ferilmöppu, þ.e. sýnishorna af verkum umsækjenda. Með eins árs starfsnámi á vinnumarkaði geta nemendur í fjölmiðlatækni útskrifast með fagbréf sem fjölmiðlatæknar.
Brautaskipulag (pdf-skjal)
| KJARNI | Brautarkjarni | Stúdentspr. | Braut | Stúd. | Alls |
| ÍSL | ÍSL103 ÍSL203 ÍSL303 |
ÍSL403 ÍSL503 |
9 | 6 | 15 |
| DAN | DAN103 DAN203 |
6 | 6 | ||
| ENS | ENS103 ENS203 |
ENS303 ENS403 |
6 | 6 | 12 |
| FÉL | FÉL103 | 3 | 3 | ||
| SAG | SAG103 | 3 | 3 | ||
| NÁT | NÁT103 | 3 | 3 | ||
| STÆ | STÆ103 | STÆ203 | 3 | 3 | 6 |
| LKN | LKN103 | 3 | 3 | ||
| ÍÞR | ÍÞR101 ÍÞR111 ÍÞR202 ÍÞR211 ÍÞR301 |
6 | 6 | ||
| SJL | SJL103 SJL203 |
6 | 6 | ||
| LIM | LIM103 LIM113 LIM203 |
9 | 9 | ||
| MHL | MHL103 MHL203 MHL313 |
9 | 9 | ||
| MHS | MHS103 MHS203 MHS304 |
10 | 10 | ||
| LEI | LEI103 | 3 | 3 | ||
| LN | Kjörsvið: Prent- og skjámiðlun | ||||
| LIS | LIS103 | 3 | 3 | ||
| MHL | MHL213 MHL223 MHL304 MHL343 MHL403 MHL504 |
20 | 20 | ||
| LNF | Kjörsvið: Fjölmiðlatækni | ||||
| FJÖ | FJÖ103 | 3 | 3 | ||
| MHL | MHL333 | 3 | 3 | ||
| FJL | FJL233 FJL333 FJL304 FJL403 FJL504 |
17 | 17 | ||
| BVAL | Bundið val: lágm. 3 ein. til að ljúka braut, 6 ein. alls til stúdentsprófs | ||||
| Kvikun | |||||
| FJL | FJL243 FJL343 FJL353 FJL363 |
||||
| Leiklist | |||||
| LEI | LEI203 LEI303 LEI403 LEI503 LEI603 LEI703 |
||||
| Módelteikning | |||||
| MYL | MYL103 MYL233 |
||||
| 3 | 3 | 6 | |||
| VBN | Frjálst val og kjörsvið í viðbótarnámi til stúdentsprófs | ||||
| VAL | VAL3 VAL2 |
5 | 8 | ||
| KJÖRSVIÐSVAL** | Áfangar af kjörsviði |
12 | 12 | ||
| Alls |
105 | 35 | 140 | ||
* Viðbótaráfangar til stúdentsprófs eru feitletraðir.
** Nemandi velur sér eina eða fleiri kjörsviðsgrein af félagsfræðabraut, málabraut eða náttúrufræðibraut, samtals 12 einingar (einingar í kjarna teljast ekki með). Sú regla gildir að hver grein sem valin er verður að mynda 9 eininga röð (einingar í kjarna teljast þá með).
Dæmi: Velji nemandi t.d. kjörsviðsgreinar af málabraut getur hann tekið einn áfanga í dönsku í viðbót við þá tvo sem hann verður að taka í kjarna og þrjá áfanga í frönsku. Hann er þá með 9 eininga röð í báðum greinum (dönsku og frönsku) og samtals 12 einingar. Ef hann velur kjörsviðsgrein af félagsfræðabraut getur hann t.d. bætt við sig tveimur áföngum í sögu og tveimur í félagsfræði, samtals 12 einingar og er þá með 9 eininga röð í báðum greinum.

