Bókasafnstækni
Sérhæfing á sviði upplýsingatækni
Í dreifnámi Borgarholtsskóla - sem fer að mestu fram á netinu með þremur tveggja daga staðbundnum lotum á hverri önn - er boðið upp á nám í bókasafnstækni (upplýsingatækni) sem er ein af sérgreinum upplýsinga- og fjölmiðlagreina (aðrar sérgreinar eru bókband, ljósmyndun, prentun, grafískri miðlun, fjölmiðlatækni og veftækni). Námið hefur þróast æ mæra útí að vera alhliða nám í upplýsingatækni sem ekki aðeins hentar þeim sem vinna á bókasöfnum heldur einnig þeim sem vilja ná valdi á tölvutengdri skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga í formi texta, máls og mynda. Kennt er m.a. á háþróuð forrit í myndvinnslu, kvikmyndagerð, hljóðvinnslu, vefsíðugerð og grafískri hönnun og getur námið því nýst breiðum hópi starfsstétta, fagmenntuðum sem ófagmenntuðum, sem æ meira þurfa að reiða sig á hvers kyns meðhöndlun og miðlun stafrænna upplýsinga í ólíku formi. Að eins árs starfsnámi loknu getur nemandi öðlast fagvottun í bókasafnstækni.

