Nám fyrir stuðningsfulltrúa, skólaliða og leiðbeinendur í leikskóla
Finnst þér börn skemmtilegt fólk? Viltu verða hæfari starfskraftur? Viltu afla þér hagnýtrar starfsmenntunar á tiltölulega stuttum tíma? Markmið námsins er að veita þekkingu og færni til starfs með börnum í námi og leik. Lögð er áhersla á námsgreinar eins og sálfræði, siðfræði, uppeldisfræði og mikilvægi samskipta í starfi með börnum. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi hreyfingar og leikja í námi og þroska barna.
Skólaliðar
Stuðningsfulltrúar í grunnskólum
Leiðbeinendur í leikskólum
Kennsla fer fram í síðdegis- og dreifnámi.
