bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Félags- og tómstundanám

Fjölmenni á gangiViltu öðlast aukna þekkingu á vettvangi frítímans og því sem máli skiptir í tómstundastarfi barna, unglinga, fatlaðra einstaklinga og aldraðra? Helsta markmið námsins er að koma til móts við þá nemendur sem hafa áhuga á margs konar frístundastörfum fyrir almenning og að þeir öðlist hæfni til að stjórna, skipuleggja og undirbúa félagsstarf hjá opinberum aðilum og frjálsum félögum. Kenndar eru ýmsar greinar eins og frítímafræði, sálfræði, fjölskyldufræði og skapandi starf. Hægt er að velja á milli valsviða eftir því hvort nemendur vinna með börnum / unglingum eða fullorðnum / öldruðum.

Kennsla fer fram í dreifnámi.



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica