Félagsliðabraut
Ertu að leita að spennandi námi á framhaldsskólastigi? Finnst þér gaman að vinna með fólki? Áttu auðvelt með mannleg samskipti? Viltu stunda fjölbreytt nám í stuttan tíma í notalegu umhverfi? Ef svo er þá er félagsliðabraut góður kostur fyrir þig. Möguleiki er á að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs að loknu námi á félagsliðabraut.
Megintilgangur náms á félagsliðabraut er að veita undirstöðuþekkingu til að efla lífsgæði einstaklinga sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda. Þar má nefna aðstoð við og umönnun barna og unglinga í félagslegum vanda. Þjónusta við fatlaða einstaklinga, aldraða, einstaklinga með geðraskanir og aðra sjúkdóma.
Kennsla fer fram í dagskóla, síðdegisnámi og dreifnámi.
