Bóknám til stúdentsprófs
Bóknámsbrautir skólans eru fjórar, félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut og viðskipta- og hagfræðibraut og eru þær allar til stúdentsprófs. Þessar brautir nýtast allar vel sem grunnur fyrir frekari skólagöngu. Að auki er boðið upp á viðbótarnám til stúdentsprófs. Það nám er ætlað þeim nemendum sem lokið hafa starfsnámi.
Heildareiningafjöldi bóknámsbrautanna eru 140 einingar sem skiptast í kjarna (98 einingar), kjörsvið (30 einingar) og frjálst val (12 einingar). Kjarnafögin eru skyldufög brautanna og nauðsynlegur grunnur fyrir nemendur. Kjörsvið felur aftur á móti í sér sérhæfingu á viðkomandi braut og miðast oft við hæfileika nemenda og þær inntökukröfur sem viðtökuskóli setur. Heildarfjöldi eininga í áfangaröð á kjörsviði verður að vera a.m.k. 9 einingar (þar með taldar einingar í kjarna). Kjörsviðsgreinar brautanna verða að vera a.m.k. þrjár og geta nemendur jafnframt tekið allt að 12 einingar af kjörsviði annarra brauta. Það gefur nemendum möguleika á enn meiri námsbreidd. Frjálsa val brautanna gefur nemendum aftur á móti möguleika á að kynna sér aðrar greinar sem tilheyra ekki þeirri braut sem þeir eru á eða til þess að bæta enn frekar við sig þeim áföngum sem tilheyra þeirri braut sem þeir eru á.
Afreksíþróttasvið
Afreksíþróttasvið í knattspyrnu, körfuknattleik og golfi er í boði fyrir afreksíþróttanemendur skólans. Þessir nemendur stunda íþrótt sína með afreksmannaálagi samhliða bóknámi. Nemendur fá fjórar námseiningar á önn sem íþrótta- og valeiningar. Kennsluaðstaðan er frábær: Egilshöll - Íþróttahús Fjölnis - Korpúlfsstaðir - Básar.
Félagsfræðabraut
Félagsfræðabraut er góður grunnur fyrir frekara nám í félagsvísindum. Á kjörsviði brautarinnar stendur nemendum til boða að sérhæfa sig í greinum á sviði félagsfræði, sálfræði, sögu, stærðfræði, hagfræði og íslensku. Nemendur kynnast ýmsum starfssviðum félagsvísinda.
Málabraut
Málabraut er góður grunnur fyrir frekara nám í tungumálum. Á kjörsviði brautarinnar stendur nemendum til boða að sérhæfa sig í dönsku, ensku, frönsku, íslensku, þýsku og stærðfræði. Nemendum brautarinnar stendur til boða að fara erlendis með tungumálakennurum skólans. Að loknu námi ættu nemendur að vera færir um að takast á við margvíslegt nám á háskólastigi og ýmis störf í atvinnulífinu sem krefjast góðrar leikni í tungumálum.
Náttúrufræðibraut
Náttúrufræðibraut er góður grunnur fyrir frekara nám í raunvísindum. Á kjörsviði brautarinnar stendur nemendum til boða að sérhæfa sig í eðlisfræði, efnafræði, jarðfræði, líffræði, stærðfræði og tölvufræði. Með námi á þessari braut fá nemendur undirstöðuþekkingu í raunvísindum og þjálfun í að beita stærðfræði í náttúruvísindum. Brautin er um leið heppilegur undirbúningur fyrir margvíslegt háskólanám svo sem verkfræði, raunvísindi og hagfræði. Lögð er sérstök áhersla á verklega kennslu og umhverfismál.
Viðskipta- og hagfræðibraut
Viðskipta- og hagfræðibraut býr nemendur undir frekara nám á sviði viðskipta og hagfræði. Á kjörsviði brautarinnar eru viðskiptafræði, hagfræði, bókfærsla, tölvufræði og stærðfræði. Nemendur kynnast meðal annars starfssviðum viðskiptalífsins og fræðilegum röksemdum hagfræðinnar. Náminu er ætlað að gefa innsýn í gangverk efnahagslífsins svo nemendur skilji betur hvernig nútímaþjóðfélög virka.
Viðbótarnám til stúdentsprófs
Nemendur sem ljúka skilgreindu starfsnámi á framhaldsskólastigi eða námi á listnámsbrautum eiga kost á viðbótarnámi til undirbúnings náms á háskólastigi samkvæmt reglum menntamálaráðuneytisins. Slíku námi lýkur með stúdentsprófi. Viðbótarnámið geta nemendur að hluta til skipulagt sjálfir en þurfa að hafa samráð við námsráðgjafa eða áfangastjóra og mikilvægt er að þeir sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi afli sér upplýsinga um þær kröfur sem þar eru gerðar um undirbúning. Einnig er mögulegt að meta fyrra nám til allt að 12 eininga á kjörsviði hefðbundinna bóknámsbrauta auk 12 eininga í frjálsu vali. Slíkt nám getur því skilað allt að 24 einingum af námi til hefðbundins stúdentsprófs.
