Bifreiðasmíði
Bifreiðasmíði er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú og hálft ár að meðtöldu grunnnámi bíliðna, samtals fimm annir í skóla og 48 vikna starfsþjálfun. Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þekkingu og færni til að gegna störfum bifreiðasmiða einkum við uppbyggingu og viðgerðir burðarvirkja og yfirbygginga allra helstu gerða ökutækja og eftirvagna. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Almennar greinar |
|
Ein. |
| Erlend tungumál* | DAN102 / ENS102 + 4 ein. | 8 |
| Íslenska | ÍSL102 ÍSL202 | 4 |
| Íþróttir | ÍÞR101 ÍÞR111 ÍÞR201 ÍÞR211 + 1 ein. | 5 |
| Lífsleikni | LKN103 LKN113 | 3 |
| Stærðfræði | STÆ102 STÆ122 | 4 |
| Samtals | 24 | |
Sérgreinar |
||
| Aflrás – grunnur | BAF101 | 1 |
| Eðlisfræði | EÐL112 | 2 |
| Grunnteikning | GRT103 | 3 |
| Hemlar – grunnur | BHE101 | 1 |
| Hlífðargassuða | HSU102 | 2 |
| Innréttingar og hurðir | BIH102 | 2 |
| Logsuða | LSU102 | 2 |
| Lokaverkefni í bifreiðasmíði | BLS103 | 3 |
| Málmsuða í bifreiðasmíði | BMS102 BMS202 | 4 |
| Plast – greining og viðgerðir | BPL102 | 2 |
| Plast – glært plast, trefjaplast | BPS201 BPS301 | 2 |
| Plötuvinna | PLV102 | 2 |
| Rafmagn í bíliðngreinum | BRA102 BRA201 BRA301 | 4 |
| Rafmagnsfræði | RAF102 | 2 |
| Rekstrarfræði | REK102 | 2 |
| Rétting | BRÉ102 BRÉ203 BRÉ302 BRÉ402 BRÉ503 | 12 |
| Samskeyting | BSK101 BSK202 BSK301 BSK402 | 6 |
| Skyndihjálp | SKY101 | 1 |
| Stýri – fjöðrun | BSF101 BSF201 BSF301 | 3 |
| Teikning – smíði | BTS102 BTS202 BTS303 BTS403 | 10 |
| Tjónamat og útreikningar | BTM102 | 2 |
| Verkstæðisfræði | BVX102 | 2 |
| Ýmis búnaður og kerfi | BÝX102 | 2 |
| Samtals | 72 | |
Starfsþjálfun 48 vikur |
48 | |
*Í stað dönsku geta nemendur tekið norsku eða sænsku.

