bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

AVV303

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
AVV303 Aflvélavinna

Kennsla

Undanfari

138

Undanfari nánar

Samhliða áfangi VFR 202

Samhliða áfangi

Æskileg námsönn

5.

Markmið

Að loknu námi í áfanganum á nemandi að þekkja:

•alla helstu hluti aflvéla (ottóvéla, dísilvéla og túrbína)

•uppbyggingu hraðgengra og hæggengra dísilvéla

•helstu aðferðir við tíma- og lokastillingu á dísilvélum

•helstu aðferðir til að herða og losa bolta við samsetningu og sundurtekningu á vélum og vélahlutum

•helstu aðferðir til að mæla slit í hinum ýmsu hlutum aflvéla

•helstu aðferðir við að greina bilanir í aflvélum


Að loknu námi í áfanganum á nemandi að geta:

•svarað almennum spurningum um uppbyggingu ottóvéla, dísilvéla og túrbína

•metið ástand aflvéla út frá mælingum

•greint algengar bilanir í aflvélum með skoðun, mælingum og prufukeyrslu

•svarað almennum spurningum um hlutverk helstu hluta í aflvélum

•stillt eldsneytis- og lokatíma á dísilvélum

•yfirfarið og stillt eldsneytisloka

•mælt slit á öllum helstu hlutum aflvéla svo sem; bullum, bulluhringjum, strokkum, sveifarás, legum og völum

•stillt tíma á eldsneytisdælum og lokum á díselvél

•lýst helstu dælum sem notaðar eru í kerfum aflvéla og metið einstaka hluti þeirra með tilliti til slits og skemmda

•valið smurolíur og smurtíma

Námsfyrirkomulag

Nemendur eiga að þekkja uppbyggingu, vinnuferli og virkni aflvéla, (díselvéla) gert allar helstu slitmælingar og geta metið ástand vélhluta með hjálp upplýsingagagna. Þeir læri að stilla díselvél og gera einfaldar bilanagreiningar.

Námsmat

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
AVV303 Aflvélavinna

Kennsla

Kennslugögn

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica