Áfangar og námsáætlanir
BEX331
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BEX331 | Efnisfræði |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
N/A
Markmið
• Nemandinn þekki gerð málningarefna, kunna skil á göllum sem upp kunna að koma við notkun þeirra og geti gert ráðstafanir til úrlausna eftir því sem við á hverju sinni.
• Nemandinn hafi þekkingu á meðferð og förgun spilliefna, geymslu þeirra og annarri meðhöndlun samkvæmt fyrirmælum framleiðenda og stofnana.
• Nemandinn þekki þær stofnanir sem hafa eftirlit með að skilyrðum um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum sé framfylgt.
Námsfyrirkomulag
Farið yfir aðferðir til úrlausna ef upp koma gallar við framkvæmd verkefna og hvernig velja má aðferðir og efni til viðgerðar ef málara eru falið að bæta gölluð verkefni.
Upprifjun helstu atriða er varða meðferð og förgun þeirra efna sem til meðferðar eru hverju sinni og hvert skuli leita ef upplýsngar vantar varðandi þau eða um meðferð þeirra og förgun.
Nemendur kynni sér nýjustu efni og upplýsingar um þau sem til boða eru á hverjum tíma.
Áhersluatriði í kennslu: Að nemandinn gæti heilsu sinnar og annarra miðað við gildandi öryggisreglur, og fari eftir fyrirmælum framleiðenda um notkun efna og tækja. Áhersla er lögð á góða umgegni.
Námsmat
Námsmat felst í lokaprófi, verkefnavinnu úr námsefninu, símati sem byggir á munnlegum og skriflegum æfingum á vinnuferli nemandans.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BEX331 | Efnisfræði |
Kennsla
Kennslugögn

