Áfangar og námsáætlanir
BSA122
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BSA122 | Samskeyting, grunnur |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
N/A
Markmið
• Nemandinn geti soðið saman með hlífðargassuðu án fösunar, þunnplötu frá 0,6 mm þykkt þannig að suðuáferð sé slétt og þarfnist sem minnstrar slípingar eftirá og suðan sé fullkomlega gegnumsoðin.
• Nemandinn geti logsoðið (acetylengas) án fösunar þunnplötu frá 0,6 mm þykkt á láréttum flötum 2-300 mm samfelldar suður en auk þess lóðrétt fallandi og lóðrétt stígandi auk kverksuðu. Suðuáferð sé slétt og þarfnist sem minnstrar slípingar eftirá og sé fullkomlega gegnumsoðin.
• Nemandinn skal sýna að hann hafi hlotið færni í harðlóðun og mjúklóðun.
Námsfyrirkomulag
Rifjuð upp efnisfræði málma í yfirbyggingu og almenn grunnatriði plötumeðferðar við réttingu.
Farið er yfir málmsuðuaðferðir, suðuáhöld og suðubúnað/vélar sem notaðar eru til hlífðargas- og logsuðu.
Æfðar suður á þunnplötu frá 0,6 mm þykkt, bæði sléttum plötum, beygðum plötum og mótuðum prófílum.
Æfðar lóðningar, bæði harðlóðun og mjúklóðun með gasi auk þess mjúklóðun með lóðbolta.
Námsmat
Námsmat felst í lokaprófi, verkefnavinnu úr námsefninu, símati sem byggir á munnlegum og skriflegum æfingum á vinnuferli nemandans.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BSA122 | Samskeyting, grunnur |
Kennsla
Kennslugögn

