Áfangar og námsáætlanir
BRÉ523
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BRÉ523 | Rétting, ífelling hluta |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
N/A
Markmið
• Nemandinn sýnir að hann er fær um að mæla upp, ákvarða viðgerðaraðferð og framkvæma viðgerð samkvæmt því á efri hlutum yfirbyggingar, lagfæra hurðarföls og rúðugöt á þann veg sem hæfir til ífellingar á rúðum, hurðum og hurðarhlerum eða gaflstykkjum ásamt réttingu og/eða umskipti ytri þakklæðningar.
• Nemandinn geti framkvæmt ísetningar og viðgerðir á rúðum af mismunandi gerðum og með mismunandi efnum og þéttingum.
• Nemandinn geti tekið úr og sett í allt rúðugler fast og hreyfanlegt svo og alla innri klæðningu og allan aukabúnað tilheyrandi ytri klæðningu.
• Nemandinn geti gengið frá samskeytum, fyllingu og frágangi á viðgerðum svæðum.
Námsfyrirkomulag
Rétting og/eða umskipti hluta í efri hlutum yfirbyggingar og þökum (toppum). Rétting á hurðagötum og ífelling hurða og rúða.
Umskipti og/eða rétting ytri klæðningar eða klæðningarhluta, rétting/umskipti hurðarstafa, þétting, fylling og frágangur á þessum tjónstöðum.
Úrtekning og ísetning alls rúðuglers og búnaðar sem því tengist. Farið yfir vinnubrögð við ísetningu á rúðum við mismunandi aðstæður, bæði á lausum rúðum og föstum.
Framkvæmdar þéttingar á gleri með mismunandi aðferðum svo og límingar á gleri og viðgerðir eftir steinkast.
Úrtekning og ísetning innri klæðningar bæði í þök, hliðar og gólf.
Lotan tengist BSK422
Námsmat
Námsmat felst í lokaprófi, verkefnavinnu úr námsefninu, símati sem byggir á munnlegum og skriflegum æfingum á vinnuferli nemandans.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BRÉ523 | Rétting, ífelling hluta |
Kennsla
Kennslugögn

