bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

BRÉ122

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
BRÉ122 Rétting, grunnur

Kennsla

Undanfari

Undanfari nánar

Samhliða áfangi

Æskileg námsönn

N/A

Markmið

• Nemandinn þekkir og lýsir ýmiskonar byggingarlagi ökutækja, hann segir frá nöfnum og tilgangi helstu hluta yfirbyggingar, bæði lausra og fastra.
• Nemandinn geti lýst eiginleikum málma sem notaðir eru í yfirbyggingu og aðgæsluatriði í vinnu við efnin.
• Nemandinn þekki helstu áhöld og tæki sem réttingu viðkoma og kann skil á handverkfærum sem notuð eru við réttingar.
• Nemandinn geti lýst þennslu og spennu sem verður til við áverka á ökutæki og lýsir helstu aðferðum við réttingu með handverkfærum og þrykkingu með (gasloga og) rafmagni.
• Nemandinn geti rétt einfaldar dældir á lausum hlutum.

Námsfyrirkomulag

Farið yfir byggingarlag ökutækja og efnisfræði. Almenn grunnatriði plötumeðferðar við réttingu. Réttir lausir hlutir og æfð rétting og frágangur slíkra tjóna.
Handverkfæri og einfaldari tjakkbúnaður sem notaður er við réttingar kynntur.
Æfðar þrykkingar með gasi og rafmagnsbúnaði.
Farið yfir verkfæri, efni og vélbúnað sem notaður er við réttingar, þennslu og þrykkingu.

Námsmat

Námsmat felst í lokaprófi, verkefnavinnu úr námsefninu, símati sem byggir á munnlegum og skriflegum æfingum á vinnuferli nemandans.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
BRÉ122 Rétting, grunnur

Kennsla

Kennslugögn

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica