Áfangar og námsáætlanir
BBX101
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BBX101 | Hemlar |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
N/A
Markmið
• Nemandinn þekki þá krafta sem eru virkir í ökutæki við hemlun og geti gert útreikninga á hröðunarkröftum, núningi og hemlunarafköstum.
• Nemandinn þekki algeng vökvahemlakerfi og lýsi þeim. Hann nefni íhluti þeirra og lýsi tilgangi þeirra. Einnig lýsi hann einföldu þrýstiloftshemlakerfi.
• Nemandinn þekki kröfur til hemla í reglugerð um gerð og búnað ökutækja.
Námsfyrirkomulag
Farið yfir hugtökin kraftur og þyngd; eðli þeirra og áhrif í ökutækjum, vogararma og snúningsvægi, núning og núningsstuðul, hreyfiorku og hemlunarafköst.
Skoðuð hemlakerfi og íhlutir; höfuðdælur, hjólhemlar bæði diska- og skálahemlar, hjálparbúnaður (þrýsti- og hemlunarstjórnun o.fl. þ.h.), rör og slöngur.
Áhersla á skyldur og ábyrgð viðgerðamann vegna umferðaröryggis.
Námsmat
Námsmat felst í lokaprófi, verkefnavinnu úr námsefninu, símati sem byggir á munnlegum og skriflegum æfingum á vinnuferli nemandans.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BBX101 | Hemlar |
Kennsla
Kennslugögn

