Áfangar og námsáætlanir
BSX411
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BSX411 | Stýri - fjöðrun, aflstýri |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
N/A
Markmið
• Nemandinn þekki helstu gerðir vökvastýrisvéla, virkni þeirra og einstaka hluti þeirra.
• Nemandinn geti prófað vökvastýrisvélar gert stillingar og minniháttar viðgerðir á þeim í ökutækinu.
• Nemandinn geti tekið vökvastýrisvél úr ökutæki, metið ástand íhluta og endurnýjað ef við á, sett stýrisvélina saman og í ökutækið.
• Nemandinn þekki virkun fjórhjólastýris og afturhjólastýris.
Námsfyrirkomulag
Upprifjun á helstu gerðum stýrisvéla úr lotu BSX101. Einnig stýrisvélar stórra bifreiða.
Farið yfir helstu gerðir vökvastýrisvéla, bæði tannastangargerð og snigilgerð.
Farið yfir helstu gerðir vökvadæla.
Mat á ástandi búnaðar og ástæður bilana.
Mældur þrýstingur vökvakerfa.
Skipti á slöngum og rörum, endurnýjun vökva, lofttæming.
Viðgerðir vökvastýrisvéla; mat á sliti húss og íhluta, ventla og þéttinga.
Viðgerðir á vökvadælum.
Farið yfir fleiri útfærslur af stýrisbúnaði en tveggja hjóla á sama ási (framan).
Upprifjun á hjólastillingu úr lotu BSH311 og notkun JOSAM hjólastillitækja við stór ökutæki.
Sérstaklega farið yfir vinnubrögð við stýrisbúnað í ökutækjum með loftpúða í stýrishjóli.
Áhersla á slysahættu við viðgerðir stýrisbúnaðar og ábyrgð viðgerðamanna vegna akstursöryggis.
Námsmat
Námsmat felst í lokaprófi, verkefnavinnu úr námsefninu, símati sem byggir á munnlegum og skriflegum æfingum á vinnuferli nemandans.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BSX411 | Stýri - fjöðrun, aflstýri |
Kennsla
Kennslugögn

