Áfangar og námsáætlanir
BHX811
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BHX811 | Hreyflar, bilanaleit |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
N/A
Markmið
• Nemandinn lýsi gerð og virkni vélbúnaðar brunahreyfla (ottó og dísil) og einstakra hluta þeirra.
• Nemandinn lýsi hvernig greina má bilanir í vélbúnaði hreyfla og ástæður þeirra.
• Nemandinn sýni að hann getur beitt ýmsum aðferðum til að kanna ástand hreyfla og geti í þeim tilgangi notað ýmis prófunar- og mælitæki.
• Nemandinn þekki til annarra kerfa hreyfilsins og og lýsir hvernig þau geta haft áhrif á vinnu og rekstraröryggi hreyfilsins.
Námsfyrirkomulag
Farið yfir bilanir og skemmdir sem orðið geta í hreyflum, kerfum og íhlutum þeirra og hver áhrif bilanir í þeim hafa á aðra hluti í hreyflinum.
Farið yfir hvernig bilanir í hreyflum lýsa sér og hverjar geti verið ástæður þeirra.
Æfingar í notkun prófunar- og mælitækja; þjöppumæla, þrýstimæla, hitamæla, afgasgreina, sveiflusjár og hlustunarpípu.
Áhersla á greiningu bilana og rekstrartruflana sem verða skömmu eftir að viðgerð hefur farið fram.
Námsmat
Námsmat felst í lokaprófi, verkefnavinnu úr námsefninu, símati sem byggir á munnlegum og skriflegum æfingum á vinnuferli nemandans.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| BHX811 | Hreyflar, bilanaleit |
Kennsla
Kennslugögn

