bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

BHX311

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
BHX311 Hreyfill

Kennsla

Undanfari

Undanfari nánar

Samhliða áfangi

Æskileg námsönn

N/A

Markmið

• Nemandinn geti skipt um olíu og síur og prófað smurþrýsting.
• Nemandinn geti skipt um legur á sveifarási, gert við eða skipt um olíudælu, olíuþétti og viðeigandi pakkningar.
• Nemandinn geti prófað kælikerfi, skipt um kælivökvadælu, hitaliða, slöngur og kæli.
• Nemandinn geti yfirfarið og prófað miðstöð og gert stillingar eða viðgerðir eftir þörfum.
• Nemandinn geti lýst virkni loftfrískunarkerfa (AC).

Námsfyrirkomulag

Upprifjun á efnisfræði viðkomandi lotunni.
Smurkort/olíuleiðbeiningar. Losun olíu af forðageymum. Áfyllingar. Skipt um síur. Mældur olíuþrýstingur.
Olíupanna tekin undan: sveifaráslegur skoðaða, mældur sveifarás, skipt um pakkningar og þétti. Smurolíudælur, olíuleiðslur og olíugangar yfirfarnar. Hvar er helst hætta á olíuleka eða olíueyðslu?
Tæming og áfylling kælivökva. Prófun á kælikerfi og miðstöð: hitastjórnun, þrýstiþol, leki, frostþol. Hreinsun kælikerfis. Skipta um kæli, kæliviftu, viftureim, kælivökvadælu, hitaliða og slöngur.
Meðhöndlun á úrgangsvökvum; olíu og kælivökva.
Ástæður þess að olía er í vatni eða vatn í olíu.
Farið yfir virkni loftfrískunarkerfa (AC).
Lyfta ökutæki og vinna undir ökutæki. Öryggisatriði við vinnu undir ökutæki á lyftu. Áhersla á hreinlæti bæði persónulegt og í allri umgengni um verkstæði, ökutæki og vélbúnað.

Námsmat

Námsmat felst í lokaprófi, verkefnavinnu úr námsefninu, símati sem byggir á munnlegum og skriflegum æfingum á vinnuferli nemandans.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
BHX311 Hreyfill

Kennsla

Kennslugögn

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica