Áfangar og námsáætlanir
ÍSL103
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| ÍSL103 | Íslenska | Læsi, ritun, tjáning |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
Markmið
Að nemendur
• auki leshraða sinn og bæti lesskilning.
• geti beitt bókmenntahugtökum við greiningu á sögum og ljóðum.
• þjálfist í ritun.
• séu færir um að leita upplýsinga og nýta hjálpargögn, s.s. orðabækur.
• fái tækifæri til að bæta kunnáttu sína í réttritun.
• auki færni sína í tjáningu.
Námsfyrirkomulag
Lesin er ein fornsaga, ein skáldsaga, ýmsir styttri textar og úrval ljóða. Í tengslum við verkin beita nemendur eftirfarandi bókmenntahugtökum: tími, umhverfi, sjónarhorn, persónulýsingar, boðskapur, þema, rím, ljóðstafir og myndmál. Einnig nýta þeir sér upplýsingar í orða- og uppflettibókum og túlka línurit, myndir og gröf. Nemendur skrifa fjölbreytilega texta, endurbæta framsetningu og vinna í tölvu. Könnunarpróf í stafsetningu er haldið í upphafi áfangans. Þeir sem ekki standast lágmarkskröfur vinna verkefni og fá annað tækifæri til að uppfylla kröfurnar. Nemendur flytja ljóð, niðurstöður hópverkefna og taka þátt í umræðum.
Námsmat
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| ÍSL103 | Íslenska | Læsi, ritun, tjáning |
Haustönn 2011
Markmið annarinnar eru m.a. að nemendur:
- þjálfist í lestri, ritun og tjáningu
- geti nýtt sér málfræði- og bókmenntakunnáttu sína á sem flestum sviðum
- séu færir um að leita upplýsinga og nýta hjálpargögn, s.s. orðabækur
Kennsluáætlun
1. lota (23. ágúst – 2. september)
Stafsetningarkönnun í fyrstu viku. Þeir sem fá einkunnina 8,0 eða hærri hafa lokið stafsetningu. Stafsetningarkennsla verður fyrir aðra.
Íslenska eitt 1. kafli. Lestur, ritun, bókmenntafræði og ljóðalestur.
Listi yfir kjörbækur afhentur.
2. lota (5. – 16. september)
Íslenska eitt 2. kafli. Bókmenntahugtök og ritun.
3. lota (19. – 30. september)
Íslenska eitt 3. kafli. Bókmenntahugtök, tjáning, talmál/ritmál.
Kjörbókarfyrirlestrar fluttir.
4. lota (3. – 27. október)
Íslenska eitt 5. og 6. kafli. Rökfærsluritgerð og atvinnuumsókn.
5. lota (31. október – 10. nóvember)
Íslenska eitt 4. kafli. Málfræði, orðflokkar og setningafræði.
6. lota (14. – 30. nóvember)
Íslendingaþættir.
Námsmat: Annareinkunn gildir 50% og lokapróf 50%. Athugið að lágmarkseinkunnar (4,5) er krafist á lokaprófi. Ef nemandi fær 4,5 eða hærra á því prófi er annareinkunn lögð við. Ef meðaltal þessara einkunna nær ekki 4,5 hefur nemandinn ekki náð áfanganum. Það skiptir því miklu máli að vinna vel alla önnina.
Nemendur bera sjálfir ábyrgð á verkefnum og skyndiprófum sem þeir missa af vegna fjarveru úr tímum og þurfa að leita upplýsinga og úrræða hjá samnemendum og/eða kennara.
Mikilvægt er að nemendur skili verkefnum á réttum tíma. Dragist skilin dregst 1.0 frá einkunn fyrir hvern dag sem líður fram yfir skiladag.
Bókalisti
Íslenska eitt. Mál og menning/ Edda útgáfa.
Íslendingaþættir. Mál og menning.
Kjörbók – sjá lista.
Verkefni áfangans:
Ráðgert er að eftirfarandi verkefni hafi vægi í annareinkunn á haustönn:
Stafsetning 10%
Ritun
Bls. 27 a (lýsing á sjálfum sér)
Bls. 54 (persónulýsing)
Bls. 75 (útdráttur)
Bls. 78 (viðtal við bekkjarfélaga)
Bls. 122 b (að byrja í frh.skóla)
Samanlagt gilda þessi verkefni 15%
Rökfærsluritgerð. Skiladagur 1. nóvember. 10%
Ljóðaverkefni skiladagur 13. september 5%
Kjörbókarfyrirlestur 10%
Samtals 50%
Til lokaprófs er:
Íslendingaþættir 20%
Íslenska eitt (Ljóð, málfræði og bókmenntafræði) 30%
Samtals 50%
Lokaeinkunn fyrir áfangann (100%) samanstendur þannig af ofangreindri annareinkunn og einkunn á lokaprófi.
Með óskum um gott samstarf,
Ásdís Kristinsdóttir
Inga Ósk Ásgeirsdóttir
Þóra Lárusdóttir

