Áfangar og námsáætlanir
MYL233
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| MYL233 | Myndlist: Lögmál, aðferðir og rýni | Anatómía |
Almennt
Áfangaheiti
Myndlist: Lögmál, aðferðir og rýni
Undanfari
MYL 103
Nánara áfangaheiti
Anatómía
Kennsla
-
Markmið
Nemandi
-
kunni skil á þeim atriðum beinabyggingar mannslíkamans sem mestu ráða um útlit hans og hreyfimöguleika
-
kunni skil á meginatriðum vöðvabyggingar mannslíkamans og vöðvatenginga
-
þekki ítarlega lögun höfuðkúpu og hlutfallaskiptingu andlits
-
þekki vel formbyggingu handa og fóta
-
þekki vel hreyfingu liðamóta, t.d. hnés og olnboga, og geti teiknað þau í mismunandi stöðu og frá ólíkum sjónarhornum
-
geti unnið sjálfstætt að einstökum verkefnum, t.d. í formi skissuvinnu og tölvuvinnslu, sem dýpka skilning hans á viðfangsefninu
-
geti tjáð sig opinskátt um verkefni sín og rökstutt þau
-
geti tekið við gagnrýni frá öðrum og nýtt sér hana á jákvæðan hátt
-
geti fjallað um verk annarra á faglegan og uppbyggilegan hátt
Námslýsing, efnisatriði og kennsluhættir
Í áfanganum læra nemendur um þau atriði í beinaog vöðvabyggingu mannslíkamans sem mest áhrif hafa á útlit hans og möguleika til hreyfingar. Teiknað verður brjósthol beinagrindar, mjaðmagrind og höfuðkúpa. Einnig vöðvabygging á brjóstkassa og baki, hálsvöðvar, maga-, handleggsog lærvöðvar. Andlit, hendur, fætur og liðamót. Við þessa vinnu verður notast við eftirtaldar fyrirmyndir:
beinagrind, vöðvaog beinateikningar úr bókum og á margmiðlunarformi og lifandi módel. Enn fremur verður krafist sjálfstæðrar rannsóknarvinnu af hálfu nemenda í formi reglulegra skila á skissuvinnu sem tengist viðfangsefninu og umræðna um hana.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| MYL233 | Myndlist: Lögmál, aðferðir og rýni | Anatómía |
Kennsla
...
Kennslugögn
...

