bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

MYL103

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MYL103 Myndlist: Lögmál, aðferðir og rýni

Módelteikning

Almennt

Áfangaheiti

Myndlist: Lögmál, aðferðir og rýni

Undanfari

SJL 103

Nánara áfangaheiti

Módelteikning

Kennsla

  • Markmið

    Nemandi

  • hafi með sýnilegum hætti þroskað sjónskynjun sína

  • hafi þjálfað alhliða færni sína í teikningu

  • kunni skil á hlutfallaskiptingu mannslíkamans

  • geti teiknað mismunandi líkamsstöðu í réttum hlutföllum

  • hafi tileinkað sér aðferðir til að bera saman, í þessu tilfelli, afstöðu mismunandi líkamshluta og raða saman í heildarmynd

  • geti notað mælingaaðferðir og hjálparlínur til að leggja mat á stærðarhlutföll

  • geti unnið breytingar á teikningum í tölvu

  • geti greint aðalatriði viðfangsefnisins frá aukaatriðum

  • kunni að forgangsraða rétt í vinnu sinni

  • geti fjallað opinskátt og á faglegan hátt um eigin verk og annarra

Námslýsing, efnisatriði og kennsluhættir

Teiknað eftir lifandi fyrirmynd. Teikningar unnar með viðarkolum og blýanti. Áhersla lögð á að nemendur tileinki sér þekkingu á hlutfallaskiptingu mannslíkamans. Læri að skoða, greina og meta fyrirmyndir sínar á kerfisbundinn og rökrænan hátt. Læri að nota hjálpargögn, svo sem lóðlínu og hjálparlínur, til að bera saman stærðarhlutföll og meta hreyfingu. Alhliða þjálfun í teikningu og

rannsókn á gildi og tjáningarmöguleikum línuteikningar. Áhersla lögð á að nemendur ræði um og þjálfist í að leggja mat á vinnu sína og annarra, út frá mismunandi gildismati og geti nýtt sér upplýsingatækni við þá vinnu.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MYL103 Myndlist: Lögmál, aðferðir og rýni

Módelteikning

Haust 2011

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica