bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

FJL333

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
FJL333 Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni

Kvikmyndagerd, heimildarmyndagerð

Almennt

  • Áfangaheiti
    Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni

  • Nánara áfangaheiti
    Kvikmyndagerd, heimildarmyndagerð

  • Undanfari

    FJL 233

Kennsla

  • Námslýsing, efnisatriði og kennsluhættir
    Nemendur vinni heimildarkvikmyndir. Þeir skilgreina verkefni sín í samráði við kennara. Ef um viðameiri verkefni er að ræða er sá möguleiki fyrir hendi að fleiri en einn standi að sama verkefni. Áhersla er lögð á að nemendur sýni agað og skipulagt vinnuferli frá fyrstu hugmynd til lokafrágangs kvikmyndar. Samhliða eigin verkefnavinnu gagnrýna nemendur verkefni hver annars og rannsaka viðfangsefni og hugmyndafræði fagmanna á sínu sviði til að kynna fyrir öðrum nemendum.

Markmið

Nemandi í lok áfangans

  • geti unnið einfalda heimildarkvikmynd

    • geti þróað hugmyndir sínar skipulega

    • geti skipulagt vinnuferli heimildarkvikmyndar

    • geti stýrt vinnu við gerð heimildarkvikmyndar

    • geti unnið heimildarkvikmynd tæknilega

      • geti stýrt vinnu við tökur heimildarkvikmyndar

      • geti stýrt hljóðupptökum við töku heimildarkvikmyndar

      • geti stýrt vinnu við klippingu heimildarkvikmyndar

      • geti unnið handrit að hljóðsetningu heimildarkvikmyndar

      • geti stýrt upptökum við hljóðsetningu heimildarkvikmyndar

      • geti skipulagt titlun heimildarkvikmyndar

      • geti gengið frá heimildarkvikmyndar til birtingar í ólíkum miðlum

  • sýni færni í að fjalla um eigin hugmyndir á gagnrýninn hátt

    • geri sér grein fyrir fagurfræðilegum álitamálum í sambandi við kvikmyndun sína

    • geri sér grein fyrir siðferðilegum álitamálum í sambandi við kvikmyndun sína

    • geri sér grein fyrir táknfræðilegum álitamálum í sambandi við kvikmyndun sína

  • geti beitt sér af rökfestu við að greina og gagnrýna hugmyndir og vinnu annarra á sviði kvikmyndunar

    • sé fær um að ræða opinskátt um og gagnrýna hugmyndir og verk samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt

    • sé fær um að taka gagnrýna afstöðu til verka á sviði kvikmyndunar og túlka þau í ræðu og riti

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
FJL333 Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni

Kvikmyndagerd, heimildarmyndagerð

Kennsla

...

Kennslugögn

...

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica