Áfangar og námsáætlanir
FJL233
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| FJL233 | Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni | Kvikmyndagerð, framhald |
Almennt
-
Áfangaheiti
Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni -
Nánara áfangaheiti
Kvikmyndagerð, framhald -
Undanfari
MHL 313
Kennsla
-
Markmið
Stefnt skal að því að nemandi
• geti búið til stuttar kvikmyndir
• þekki forsendur handritagerðar
• geti nýtt sér nokkuð fjölbreytt stílbrögð við kvikmyndun
• kunni að klippa saman kvikmynd af öryggi
• geri sér grein fyrir áhrifum stílbrigða á merkingu kvikmyndar
• skilji hvernig ólík sjónarhorn hafa áhrif á merkingu kvikmyndar
• skilji hvernig mismunandi klippistíll breytir merkingu kvikmyndar
• skilji hvernig hljóðmynd mótar merkingu kvikmyndar
• taki þátt í hóp sem deilir með sér verkum við gerð kvikmyndar
• sé fær um að fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gera grein fyrir forsendum
• sé fær um að ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann er að túlka í verkum sínum
• sé fær um að ræða opinskátt hugmyndir og kvikmyndir samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt
• sé fær um að taka gagnrýna afstöðu til kvikmyndaefnis og túlka í ræðu og riti
• geti sýnt fram á að hann sé fær um að þróa hugmyndir sínar í kvikmynd á meðvitaðan og gagnrýninn hátt
• geti sýnt fram á að hann geti nýtt sér kvikmyndun sem miðil til að tjá skoðanir sínar og hugmyndir um umhverfi sitt. -
Námslýsing, efnisatriði og kennsluhættir
Í áfanganum læra nemendur að beita aðferðum kvikmyndunar til að tjá hugmyndir sínar og tilfinningu fyrir umheiminum. Þeir þjálfast í framleiðslu kvikmynda, í hugmyndavinnu og handritagerð allt til klippingar og lokafrágangs. Rík áhersla er lögð á greiningu nemenda á áhrifum þess myndstíls sem þeir beita í verkum sínum. Einnig rannsaka nemendur myndefni úr samtíma sínum og greina merkingu þess og möguleg áhrif. Tveir þættir vega þyngst í vinnunni. Annars vegar sköpun, túlkun og tjáning þar sem nemendur vinna að eigin verkefnum innan ákveðins ramma sem kennari ákveður; og hins vegar skynjun, greining og mat þar sem nemendur greina eigin verk, verk samnemenda og valin verk samtímakvikmyndagerðarmanna og annarra samtímalistamanna með tilliti til inntaks, stílbrigða og tækni.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| FJL233 | Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni | Kvikmyndagerð, framhald |

