bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

MHL223

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MHL223 Margmiðlunarhönnun: Lögmál, aðferðir og rýni

Umbrot

Undanfari
SJL 203

Kennsla

Markmið

Stefnt skal að því að nemandi

  • kunni að vinna með myndefni og texta á síu
  • þekki forsendur myndbyggingar á síðu
  • kunni skil á mismunandi tegundum leturs
  • þekki íslenskar grunnreglur í textasetningu
  • skilji tilgang og virkni þeirra þátta sem byggja upp síðu: fyrirsagna
  • textadálka, mynda o.þ.h.
  • þekki tæknilegar forsendur prentunar og birtingar og skilji hvaða forsendur eru að baki letursetningu, birtingu og útprentun í prent- og skjámiðlum
  • kunni skil á mismunandi hönnun síðna með tilliti til ólíks efnis og tilgang
  • sé fær um að fjalla um og meta eigin umbrotsverk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gera grein fyrir forsendum
  • sé fær um að ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann er að reyna að túlka í verkum sínum
  • sé fær um að ræða opinskátt um og gagnrýna umbrotsverk samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt o sé fær um að taka gagnrýna afstöðu til verka
  • þekktra grafískra hönnuða og túlka þau í ræðu og riti
  • geti sýnt fram á að hann sé fær um að þróa hugmyndir sínar í umbroti á meðvitaðan og gagnrýninn hátt

Námslýsing, efnisatriði og kennsluhættir

Í áfanganum læra nemendur að hanna síður, bæði fyrir prent- og skjámiðla. Þeir læra reglur um textasetningu og gera tilraunir með fjölbreytta uppsetningu texta. Þeir kynnast einnig reglum um notkun mynda í skipulagi síðu. Þeir læra einnig að koma tölulegum upplýsingum á framfæri á myndrænan og skýran hátt. Mikil áhersla er lögð á að nemendur séu sér ætíð meðvitaðir um læsileika þess efnis sem þeir vinna með og um tengsl innihalds og útlits síðunnar. Tveir þættir vega því þyngst í vinnu annarinnar: Annars vegar ferlið, sköpun, túlkun og tjáning þar sem nemendur vinna að einstökum verkefnum og frelsi þeirra til útfærslu eigin hugmynda eykst þegar líður á áfangann; og hins vegar ferlið skynjun, greining og mat þar sem nemendur greina eigin verk, verk samnemenda og verk þekktra hönnuða með tilliti til inntaks og uppsetningar efnisins.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MHL223 Margmiðlunarhönnun: Lögmál, aðferðir og rýni

Umbrot

MHL223 vor 2012

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica