Áfangar og námsáætlanir
FJL363
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| FJL363 | Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni | Gagnvirk kvikun |
Almennt
Áfangaheiti
Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni
Undanfari
FJL 243
Nánara áfangaheiti
Gagnvirk kvikun
Kennsla
-
Markmið
Nemandinn í lok áfanga:
-
kunni vinnubrögð við hönnun fyrir gagnvirka vektorkvikun
-
kunni að leggja drög að verki með skissum
-
kunni að skipuleggja nokkuð viðamikla hreyfingu hluta og persóna í vektorkvikun
-
kunni að vinna með mismunandi plön bakgrunns og atburðarásar í vektorkvikun
-
kunni að vinna mðe einfalda gagnvirkni og að þróa vektorkvikað verk þar sem notandi getur haft áhrif á atburðarás
-
geri sér grein fyrir áhrifum stílbrigða á merkingu vektorkvikaðra mynda
-
skilji hvernig sjónarhorn hefur áhrif á merkingu myndar
-
skilji hvernig uppröðun sena og atburða breytir merkingu í vektorkvikun
-
sé fær um að fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gera grein fyrir forsendum
-
sé fær um að ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann er að reyna að túlka í verkum sínum
-
sé fær um að ræða opinskátt um og gagnrýna hugmyndir og verk samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt
-
sé fær um að taka gagnrýna afstöðu til vektorkvikaðra verka og túlka í ræðu og riti
-
geti sýnt fram á að hann sé fær um að þróa myndhugmyndir sínar áfram á meðvitaðan og gagnrýninn hátt
-
geti sýnt fram á að hann geti nýtt sér kvikun í lögum til að tjá skoðanir sínar og hugmyndir um umhverfi sitt
Námslýsing, efnisatriði og kennsluhættir
Nemendur fara yfir grunnatriði forritunar fyrir vektorkvikun og læra að búa til kvikuð verk þar sem áhorfandi getur verið virkur þátttakandi í framvindu atburðarásar. Nemendur læra einnig fjölbreytta aðferðafræði við gerð og samsetningu mynda í vektorkvikun, auk þess að vinna með breytur til að hafa áhrif á atburðarás. Þeir þjálfast í tækni við hugmyndavinnu, skissugerð og skipulag vektorkvikaðra mynda. Mikil áhersla er lögð á táknræn, sálfræðileg og merkingarleg áhrif þeirra mynda og hugmynda sem nemendur eru að vinna með. Nemendur eru hvattir til að skoða vel áhrif þess umhverfis sem þeir eru að skapa í verkum sínum. Tveir þættir vega þyngst í vinnunni: annars vegar sköpun, túlkun og tjáning þar sem nemendur vinna að eigin verkefnum innan ákveðins ramma sem kennari ákveður, hér þróa nemendur hugmyndir sínar, skissa og vinna þær síðan með aðstoð tölvu þar til þær eru tilbúnar til birtingar í ákveðnu samhengi; og hins vegar skynjun, greining og mat þar sem nemendur greina eigin verk, verk samnemenda og verk úr myndumhverfi sínu með tilliti til áhrifa, inntaks og mynduppbyggingar.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| FJL363 | Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni | Gagnvirk kvikun |
Kennsla
...
Kennslugögn
...

