Áfangar og námsáætlanir
FJL343
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| FJL343 | Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni | Þrívíddarkvikun |
Almennt
Áfangaheiti
Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni
Undanfari
FJL 243
Nánara áfangaheiti
Þrívíddarkvikun
Kennsla
-
Markmið
Nemandinn í lok áfanga:
-
kunni vinnubrögð við hönnun fyrir þvívíddarkvikun
-
kunni að leggja drög að verki með skissum
-
kunni að skipuleggja hreyfingu hluta og persóna við þvívíddarkvikun
-
kunni að vinna með mismunandi tól og ása við formun, skurð og samsetningu í hluta þvívíddarkvikun
-
kunni að búa til hreyfanlegar persónur eða skepnur fyrir þvívíddarkvikun
-
kunni að vinna með mismunandi áherslur lýsingar, áferðar og myndatökuhreyfingar við þvívíddarkvikun
-
geri sér grein fyrir áhrifum stílbrigða á merkingu þvívíddarkvikaðra mynda
-
skilji hvernig sjónarhorn hefur áhrif á merkingu myndar
-
skilji hvernig uppröðun sena og atburða breytir merkingu í þrívíddarkvikun
-
sé fær um að fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gera grein fyrir forsendum
-
sé fær um að ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann er að reyna að túlka í verkum sínum
-
sé fær um að ræða opinskátt um og gagnrýna hugmyndir og verk samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt
-
sé fær um að taka gagnrýna afstöðu til þvívíddarkvikaðra mynda og túlka í ræðu og riti
-
geti sýnt fram á að hann sé fær um að þróa myndhugmyndir sínar áfram á meðvitaðan og gagnrýninn hátt
-
geti sýnt fram á að hann geti nýtt sér kvikun í lögum til að tjá skoðanir sínar og hugmyndir um umhverfi sitt
Námslýsing, efnisatriði og kennsluhættir
Nemendur fara yfir grunnatriði þvívíddarkvikunar og læra að búa til kvikaðar myndir með aðferðum þrívíddarkvikunar í tölvuumhverfi. Nemendur læra einnig að búa til rými, form og persónur og að kvika þessa þætti þannig ða úr verði heildstætt verk. Þeir þjálfast í tækni við hugmyndavinnu, skissugerð og skipulag þvívíddarkvikaðra mynda. Mikil áhersla er lögð á táknræn, sálfræðileg og merkingarleg áhrif þeirra mynda og hugmynda sem nemendur eru að vinna með. Nemendur eru hvattir til að skoða vel áhrif þess umhverfis sem þeir eru að skapa í verkum sínum. Tveir þættir vega þyngst í vinnunni: annars vegar sköpun, túlkun og tjáning þar sem nemendur vinna að eigin verkefnum innan ákveðins ramma sem kennari ákveður, hér þróa nemendur hugmyndir sínar, skissa og vinna þær síðan með aðstoð tölvu þar til þær eru tilbúnar til birtingar í ákveðnu samhengi; og hins vegar skynjun, greining og mat þar sem nemendur greina eigin verk, verk samnemenda og verk úr myndumhverfi sínu með tilliti til áhrifa, inntaks og mynduppbyggingar.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| FJL343 | Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni | Þrívíddarkvikun |
Kennsla
...
Kennslugögn
...

