Áfangar og námsáætlanir
FJL243
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| FJL243 | Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni | Kvikun |
Almennt
Áfangaheiti
Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni
Undanfari
SJL 203
Nánara áfangaheiti
Kvikun
Kennsla
Markmið
Nemandinn í lok áfanga:
-
kunni vinnubrögð við hönnun kvikaðra mynda
-
kunni að leggja drög að verki með skissum
-
kunni að skipuleggja hreyfingu hluta og persóna
-
kunni að vinna með mismunandi plön bakgrunns og atburða
-
geri sér grein fyrir áhrifum stílbrigða á merkingu kvikaðra mynda
-
skilji hvernig sjónarhorn hefur áhrif á merkingu myndar
-
skilji hvernig uppröðun sena og atburða breytir merkingu myndar
-
skilji hvernig mismunandi aðferðir vði kvikun, rými, form og áferð breytir merkingu myndar
-
sé fær um að fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gera grein fyrir forsendum
-
sé fær um að ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann er að reyna að túlka í verkum sínum
-
sé fær um að ræða opinskátt um og gagnrýna hugmyndir og verk samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt
-
sé fær um að taka gagnrýna afstöðu til kvikaðra mynda og túlka í ræðu og riti
-
geti sýnt fram á að hann sé fær um að þróa myndhugmyndir sínar áfram á meðvitaðan og gagnrýninn hátt
-
geti sýnt fram á að hann geti nýtt sér teiknimyndir til að tjá skoðanir sínar og hugmyndir um umhverfi sitt
Námslýsing, efnisatriði og kennsluhættir
Í áfanganum kynnast nemendur grunn atriðum kvikunar og læra að búa til kvikaðar myndir með ólíkum tæknilegum aðferðum. Þeir læra einfalda tækni við hugmyndavinnu og skissugerð fyrir kvikun. Þeir læra helstu hefðbundnar aðferðir við kvikun, bæði í teikningu og í rými, auk þess að læra aðferðir við vektorkvikun. Verk nemenda eru kynnt í tímum með myndvarpa, á netinu á heimasvæði nemenda og svo í lokin eru öll verkefni sett á disk og skilað til kennara. Mikil áhersla er lögð á táknræn, sálfræðileg og merkingarleg áhrif þeirra mynda og hugmynda sem nemendur eru að vinna með. Hér eru nemendur hvattir til að skoða vel áhrif þess sýndarheims sem þeir eru að skapa í verkum sínum. Tveir þættir vega þyngst í vinnunni: annars vegar sköpun, túlkun og tjáning þar sem nemendur vinna að eigin verkefnum innan ákveðins ramma sem kennari ákveður, hér þróa nemendur hugmyndir sínar, skissa og vinna þær síðan með aðstoð tölvu þar til þær eru tilbúnar til birtingar í ákveðnu samhengi; og hins vegar skynjun, greining og mat þar sem nemendur greina eigin verk, verk samnemenda og verk úr myndumhverfi sínu með tilliti til áhrifa, inntaks og mynduppbyggingar“.
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| FJL243 | Fjölmiðlatækni: Lögmál, aðferðir og rýni | Kvikun |

