Áfangar og námsáætlanir
MHL343
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| MHL343 | Lögmál, aðferðir og rýni | Skjámiðlun |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
Markmið
Námsfyrirkomulag
Í áfanganum læra nemendur að hanna og skipulegja efni fyrir skjámiðla. Þeir læra forsendur textasetningar á skjá og kynnast reglum um notkun mynda í skipulagi síðu á skjá. Þeir læra að vinna með myndir og texta á hreyfingu í fletinum.
Námsmat
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| MHL343 | Lögmál, aðferðir og rýni | Skjámiðlun |
Áfangalýsing
Við lok
áfangans á nemandinn að hafa tileinkað sér færni í að koma upplýsingum
og skoðunum skilmerkilega á framfæri á tvívíðum fleti skjámiðla. Í
áfanganum læra nemendur að hanna og skipulegja efni fyrir skjámiðla.
Þeir læra forsendur textasetningar á skjá og gera tilraunir með
fjölbreytta uppsetningu á texta. Þeir kynnast reglum um notkun mynda í
skipulagi síðu á skjá. Mikil áhersla er lögð á að nemendur séu sér ætíð
meðvitaðir um tengsl innihalds og virkni miðlisins. Tveir þættir vega
því þyngst í vinnu annarinnar: annars vegar ferlið sköpun, túlkun og
tjáning þar sem nemendur vinna að einstökum verkefnum og frelsi þeirra
til útfærslu eigin hugmynda eykst þegar líður á áfangann; og hins vegar
ferlið skynjun, greining og mat þar sem nemendur greina eigin verk, verk
samnemenda og verk þekktra hönnuða með tilliti til inntaks og
uppsetningar efnisins.
Áfangamarkmið
Nemandi
- kunni að vinna með myndefni og texta á skjá
- þekki forsendur myndbyggingar á skjá
- skilji tilgang og virkni
- skilji tilgang og virkni þeirra þátta sem byggja upp skjásíðu: textaefnis, mynda, hreyfingar o.þ.h.
- þekki tæknilegar forsendur birtingar efnis í skjámiðlum
- skilji hvaða forsendur eru að baki efnisframsetningu og birtingar í skjámiðlum
- skilji hvaða forsendur eru að baki notkunar myndefnis í skjámiðlum
- skilji hvaða forsendur eru að baki kviks efnis í skjámiðlum
- kunni skil á mismunandi hönnun miðils með tilliti til ólíks efnis og tilgangs
- sé fær um að fjalla um og meta eigin hönnunarverk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gera grein fyrir forsendum
- sé fær um að ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann er að reyna að túlka í verkum sínum
- sé fær um að ræða opinskátt um og gagnrýna hönnunarverk samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt
- geti sýnt fram á að hann sé fær um að þróa myndhugmyndir sínar á meðvitaðan og gagnrýninn hátt
Námsgögn
Hugbúnaður: Dreamweaver, Photoshop (GIMP).
Námsmat
| Verkefni 1: HTML og CSS, Framsetning efnis á skjá. Myndir og texti á vefsíðum. |
20% |
| Verkefni 2: Templates/ Hollt og gott | 20‰ |
| Verkefni 3: Skjáverk |
10% |
| Verkefni 4: Lokaverkefni/ Ferilmappa | 40% |
| Ástundun /Virkni | 10% |
| 100% |
Fjarvistir
Nemanda ber að mæta stundvíslega í kennslustund. Komi nemandi 10 mínútum of seint fær hann "F".
Fari óheimilar fjarvistir* yfir 15% telst nemandi fallinn í áfanganum en fari heildarfjarvistir yfir 20% af hvaða
ástæðu sem er (þar með töldum veikindum) telst nemandi jafnframt fallinn.

