bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

SJL203

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
SJL203 Sjónlistir

Form-, efnis- og litafræði

Áfangalýsing

Nemendur gera verkefni til að þjálfa hæfni sína og skilning í formfræði og litafræði. Í formfræði kanna þeir lögmál klassískrar myndbyggingar og hugtök á borð við frumform, jafnvægi, spennu, endurtekningu, hlutbundin og óhlutbundin form, mynstur og merkingu. Í litafræði rannsaka nemendur blöndun lita, heita og kalda liti, andstæðuliti, ljósa og dökka liti, sálræn áhrif lita og merkingu þeirra.  Unnið er bæði með liti á skjá og efnisblöndun lita. Lögð er áhersla á að nemendur kanni áhrif lita, forma og myndbyggingar í myndlist og miðlun.

Áfanginn er kenndur í nýannakerfi á haustönn, 12 tíma á viku seinni hluta annarinnar

Undanfari: SJL 103

Markmið

Nemandi

- þekki möguleika punkts, línu, frumforma og samsettra forma í myndfletinum

- sé fær um að hagnýta lögmál myndbyggingar í myndrænum tilgangi

- þekki grunnatriði litablöndunar

- geti beitt formum og litum í markvissum tilgangi

- sé fær um að greina myndverk með tilliti til myndbyggingar, lita og áferðar.

- sé fær um að ræða ólíka merkiningu forma, lita og áferðar í samfélaginu

Námsmat

Verk nemenda eru metin með tilliti til þeirrar þekkingar, leikni og hæfni í formfræði, litafræði og myndbyggingu sem kemur fram í þeim. Þá eru metnir þættir s.s. vandvrikni og sjálfstæði í vinnubrögðum, frumleiki og hæfileiki til að rökræða og skýra eigin verk og annara. Ástundun og virkni í kennslustundum vega tíund af heildareinkunn.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
SJL203 Sjónlistir

Form-, efnis- og litafræði

Haust 2011

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica