Áfangar og námsáætlanir
SJL103
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| SJL103 | Sjónlistir | Teikning og merking |
| Undanfari: Enginn | Kenndur: haust (nýannakerfi) |
Í áfanganum læra nemendur grunnatriði teikningar. Teiknuð eru einföld form, svo sem kassa- og kúluform, kenndar eru forsendur fjarvíddar og að teikna mannslíkamann eftir lifandi fyrirmynd.
Í tengslum við vinnuna í teikningu er lögð áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir í hvers konar samhengi þeir geta nýtt sér þessa þjálfun. Þeir eru hvattir til að þróa hugmyndir sínar áfram. Rík áhersla er lögð á umræður og að nemendur geti greint niðurstöður sínar út frá fagurfræðilegum forsendum. Samhliða teikningu er ætlast til þess að nemendur haldi skissubók þar sem þeir vinna myndir út frá því sem gert er í tímum og þrói jafnframt hugsanir sínar og hugmyndir út frá formfræðilegum forsendum.
Markmið
Nemandi
• geri sér grein fyrir eðli, uppbygginu og samsetningu mismunandi forma
• geti teiknað einfaldar skissur út frá mismunandi fyrirmyndum
• sýni að hann geti þróað hugmyndir sínar út frá teiknivinnunni
• sé fær um að ræða og rökstyðja þær hugmyndir sem hann túlkar í verkum sínum
Námsfyrirkomulag
Í áfanganum læra nemendur grunnatriði teikningar. Þeir teikna einföld form, svo sem kassa- og kúluform, læra forsendur fjarvíddar og að teikna mannslíkamann eftir lifandi fyrirmynd.
Námsmat
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| SJL103 | Sjónlistir | Teikning og merking |

