Áfangar og námsáætlanir
STÆ103
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| STÆ103 | Stærðfræði | Jöfnur, rúmfræði og hlutföll |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
Markmið
Að nemendur
• geti sett upp og leyst verkefni sem fela í sér jöfnur og formúlur
• geti beitt fjölbreyttum vinnubrögðum við lausn stærðfræðilegra verkefna
• nái tökum á hlutfalsshugtakinu
• öðlist færni í röksemdafærslu
• þekki nokkur undirstöðuhugtök evklíðskrar rúmfræði
• þekki helstu reglur um einslögun, hlutföll og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi
Námsfyrirkomulag
Lagður verður grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefnin verða á sviði rúmfræði en jafnframt verður talnameðferð rifjuð upp ásamt jöfnur. Fjallað verður um nokkur hugtök evklíðskrar rúmfræði, hnitakerfið og jöfnu beinnar línu. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið frá mörgum hliðum. Kennsla verður með hefðbundnum hætti: kennari leggur námsefni inn og reiknar á töflu þau dæmi sem dæmigerð geta talist. Áherla verður lögð á að gefa nemendum tækifæri til að reikna í tímum þannig að færi gefist á spurningum. Námsmat byggist á vinnu nemenda yfir önnina, bæði heimaverkefnum og hlutaprófum. Lagt verður mat á vinnusemi, ástundun og frágang skilaverkefna. Tekið verður tillit til þess hvort nemendur hafa tileinkað sér ásættanleg og fagleg vinnubrögð.
Námsmat
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| STÆ103 | Stærðfræði | Jöfnur, rúmfræði og hlutföll |
Kennsla
Kennslugögn

