Áfangar og námsáætlanir
NÁT103
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| NÁT103 | Líffræði |
Kennsla
Undanfari
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
Markmið
Að nemandi
• geri sér grein fyrir eðli og hlutverki líffræðinnar sem vísindagreinar.
• þekki helstu efnaflokka sem lífverur eru byggðar úr og hlutverk þeirra.
• þekki gerð og starfsemi frumna.
• þekki vefi, líffæri og líffærakerfi dýra.
• skilji hvað felst í efnaskiptum og sjálfsviðhaldi.
• þekki flokkunarkerfi lífheimsins.
• þekki lífshætti og gerð veira, gerla (baktería), sveppa og sníkjudýra og geti í því sambandi lýst samskiptum þeirra við aðrar lífverur til góðs og ills.
• skilji hugtök og grunnhugmyndir í erfðavísindum
• þekki hugtök og grunnhugmyndir í vistfræði
Námsfyrirkomulag
Í þessum grunnáfanga fer fram kynning á séreinkennum líffræði sem vísindagreinar, tengslum hennar við aðrar greinar og mikilvægi og eðli líffræðirannsókna. Teknir eru fyrir ýmsir grundvallarþættir lifandi náttúru, sameinkenni lífvera og ferli sem tengja lífverur hvers vistkerfis saman. Bygging frumunnar og starfsemi er tekin til umfjöllunar og efnisþættir hennar eru skoðaðir út frá gerð og hlutverki. Fjallað er um efni líkamans, vefi, líffæri og líffærakerfi. Einnig efnaskipti og sjálfsviðhald. Farið er í flokkun lífheimsins og hugmyndir um uppruna lífs á jörðu. Auk þess er fjallað um grundvallarþætti erfðafræði og um gerð og starfsemi vistkerfa með áherslu á efna- og orkuflutning, mikilvægi fjölbreytileikans innan þeirra og áhrif mannsins.
Námsmat
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| NÁT103 | Líffræði |
Vor 2011
Kennslugögn:
Líffræði; Frá atómi að alheimi. Handrit í sex hlutum
eftir Gunnlaug B. Ólafsson.
Ítarefni; Líffræði: Kjarni fyrir framhaldsskóla eftir
Örnólf Thorlacíus.
Ljósrit, glósur og annað sem kemur fram í tímum.
Kennari: Gunnlaugur B. Ólafsson
Áfangalýsing og markmið:
-sjá Aðalnámskrá framhaldsskóla, náttúrufræði
Kennslutilhögun:
Fyrirlestrar, umræður, myndbönd, hópvinna, verklegar æfingar og skýrslur.
Tíma- og vinnuáætlun:
1-2. vika Efni
Farið er í efnafræðilegar undirstöður lífsstarfseminnar
3-4. vika Frumur
Farið er í uppbyggingu og starfsemi frumna, grunneininga lífs
5-6. vika Líffæri
Farið er í hlutverk líffæra og líffærakerfa mannslíkamans
I. HLUTAPRÓF
7-8. vika Efnaskipti
Farið er í helstu gerðir efnaskipta, meltingu og nauðsynleg næringarefni
9-10. vika Erfðir
Farið er í útreikninga á
hlutföllum einkenna, ásamt byggingu og tjáningu DNA
11. vika Umhverfi
Farið er í fæðutengsl og aðra samverkun innan og milli tegunda
II. HLUTAPRÓF
12-14. vika Flokkun lífvera og verklegar æfingar
Nemendaverkefni
Heimavinna:
Heimavinna nemenda er afar mikilvæg, enda er ástundun og vinnusemi forsenda árangurs í því símatsfyrirkomulagi sem er á þesssum áfanga. Nemendur þurfa að lesa heima fyrir hvern tíma og leysa verkefnin í lok kaflanna í bókinni. Nemendur fá punkta fyrir heimavinnu sem kemur inn í ástundun. Skilaverkefnum og skýrslum ber að skila eigi síðar en viku eftir framkvæmd. Ef það dregst lækkar einkunnin um hálfan fyrir hvern dag sem að er skilað of seint. Þesssi vinna er á ábyrgð nemenda og geta þeir notið aðstoðar kennara eftir þörfum.
Verkleg kennsla:
Skipulögð verður verkleg kennsla, þó slíkt verði í takmörkuðum mæli vegna hópastærða. Nemendur verða þjálfaðir í notkun smásjár, krufning, gagnameðhöndlun fyrir skýrslugerð og að þekkja einkenni mismunandi tegunda og lífveruhópa.
Námsmat:
Hlutapróf (3) 30 %
Nemendaverkefni 15%
Ástundun, skýrslur og önnur verkefni 15%
Annareinkunn 60 %
Lokapróf 40 %
Nemendum ber að skila öllum verkefnum og ljúka hlutaprófum til að öðlast rétt til að þreyja lokapróf. Auk þess þarf mæting að vera yfir 85 %. Nái nemandi yfir 8,5 í annareinkunn getur viðkomandi sloppið við lokapróf.
Með von um gott samstarf
Gunnlaugur B. Ólafsson

