bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

MHS203

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MHS203 Félagslegt og sögulegt samhengi kvik- og teiknimynda

Kvik- og skjámiðlasaga

Kennsla

Undanfari

301

Undanfari nánar

Samhliða áfangi

Æskileg námsönn

N/A

Markmið

Stefnt skal að því að nemandi

• hafi hlotið innsýn í stílfræðilega og hugmyndafræðilega þróun kvik- og teiknimynda

• geri sér grein fyrir þeim áhrifum sem kvikmyndir hafa haft á þróun samfélagsins

• geti túlkað mögulega merkingu kvik- og teiknimynda

• geti kynnt niðurstöður sínar á fjölbreyttan hátt

Námsfyrirkomulag

Nemendur kynnast sögu kvik- og teiknimynda frá upphafi þessarar aldar fram til um 1980. Samfélagsleg áhrif kvikmynda á áhorfendur er rannsóknarefni áfangans, auk merkingarfræðilegra og siðferðislegra álitamála sem þeim tengjast. Nemendur fá góða innsýn í mótun þessara miðla og öðlast betri skilning á þeirri hugmyndafræði sem býr að baki þeim og á tengslum þeirra við samfélagið á okkar tímum. Námið er byggt upp á þematískan hátt og er reiknað með að í hverri viku verði ákveðið viðfangsefni á þessu sviði krufið. Námið fari að miklu leyti fram í verkefnavinnu þar sem nemendur nálgast viðfangsefnið út frá eigin forsendum, vinni verkefni út frá þema vikunnar, kynni það hver fyrir öðrum og ræði þau álitamál sem upp koma.

Námsmat

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MHS203 Félagslegt og sögulegt samhengi kvik- og teiknimynda

Kvik- og skjámiðlasaga

HAUST 2011

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica