bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

MHS103

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MHS103 Félagslegt og sögulegt samhengi grafískra miðla

Prent- og ljósmyndasaga

Undanfari nánar

LIM 113 SJL 103
Kjörsvið margmiðlunarhönnunar

Markmið

Nemandi

• hafi hlotið innsýn í stílfræðilega og hugmyndafræðilega þróun grafískra miðla

• geri sér grein fyrir því hvernig merkingarsamhengi grafískra miðla hefur þróast

• geri sér grein fyrir þeim áhrifum sem grafískir miðlar hafa haft á þróun samfélagsins

• greini fjölbreytta beitingu grafískra miðla í gegnum tíðina

• skilji hvernig þróun þessara miðla hefur getað valdið breytingum á samskiptamynstri innan samfélaga

• geti túlkað mögulega merkingu ljósmynda og prentefnis

• skilji hvernig beita má grafískum miðlum í áróðursskyni

• skilji hvernig grafískir miðlar geta haft áhrif á skoðanir fólks

• skilji hvernig grafískir miðlar geta verkað á sjálfsímynd fólks

• skilji hvernig birting ímynda fólks getur ýmist styrkt ráðandi kerfi eða sett spurningarmerki við það

• skilji hvernig atriði eins og lýsing, skurður og sjónarhorn geta haft áhrif á okkur tilfinningalega

• geti greint flókið samspil texta og myndar í prentmiðlum og álitamál varðandi merkinguna

• geti rætt um álitamál myndmerkingar og -áhrifa

• geti kynnt niðurstöður sínar á fjölbreyttan hátt

• geti tekið á virkan hátt þátt í umræðu um verkefni sín og annarra nemenda

Námsfyrirkomulag

Nemendur kynnast sögu grafískra miðla, allt frá fyrstu ritun til ljósmynda og prentunar í samtíma sínum. Samfélagsleg áhrif grafískra miðla eru rannsóknarefni áfangans og þau merkingarfræðilegu og siðferðislegu álitamál sem sprottið hafa út frá hagnýtingu þeirra. Nemendur fá góða innsýn í mótun þessara miðla og öðlast betri skilning á þeirri hugmyndafræði sem býr að baki þeim og á tengslum þeirra við samfélagið á okkar tímum.

Námið er byggt upp á þematískan hátt og er reiknað með að í hverri viku verði ákveðið viðfangsefni á þessu sviði krufið. Námið fer að mestu leyti fram í verkefnavinnu þar sem nemendur nálgast viðfangsefnið út frá eigin forsendum, vinna verkefni út frá þema vikunnar, kynna það hver fyrir öðrum og ræða þau álitamál sem upp koma. Einu sinni á önninni vinna nemendur stórt verkefni í pörum þar sem þeir gera viðamikla rannsókn út frá einhverju þema áfangans.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MHS103 Félagslegt og sögulegt samhengi grafískra miðla

Prent- og ljósmyndasaga

MHS103 vor 2012

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica