Áfangar og námsáætlanir
MHL504
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| MHL504 | Lögmál, aðferðir og rýni | Margmiðlun: Lokaverkefni |
Kennsla
Undanfari
299
Undanfari nánar
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
Markmið
Stefnt skal að nemandi
• hafi unnið viðamikið verkefni á margmiðlunarformi
• sýni færni í að fjalla um eigin hugmyndir á gagnrýninn hátt
• geti beitt sér af rökfestu við að greina og gagnrýna hugmyndir og vinnu annarra á sviði margmiðlunar
• sé fær um að ræða opinskátt um og gagnrýna hugmyndir og verk samnemenda sinna
• sé fær um að taka gagnrýna afstöðu til verka á sviði margmiðlunar og túlka þau í ræðu og riti
Námsfyrirkomulag
Nemendur vinna að lokaverkefni sínu á sviði margmiðlunarhönnunar. Þeir skilgreina verkefni sitt á áhugasviði sínu í samráði við kennara. Fleiri en einn nemandi getur staðið að sama verkefni. Áhersla er lögð á að nemendur sýni agað og skipulagt vinnuferli frá fyrstu hugmynd til lokafrágangs hönnunarverkefnis. Einnig er mikilvægt að góður heildarsvipur sé á lokaútfærslu verkefnis. Samhliða eigin verkefnavinnu gagnrýna nemendur verkefni hver annars og rannsaka viðfangsefni og hugmyndafræði fagmanna á sínu sviði til að kynna fyrir öðrum nemendum. Áfanginn er kenndur í 14 tíma á viku í samtals 8 vikur. Námið er fjölbreytt og skiptist í grófum dráttum í tvo hluta: Verkstæðisvinnu og greiningu og mat.
Námsmat
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| MHL504 | Lögmál, aðferðir og rýni | Margmiðlun: Lokaverkefni |
Kennsla
Kennslugögn

