Áfangar og námsáætlanir
MHL403
Áfangalýsing
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| MHL403 | Lögmál, aðferðir og rýni | Margmiðlun: Verkstæði |
Kennsla
Undanfari nánar
MHL 304 313 323 MHS 203
Samhliða áfangi
Æskileg námsönn
Markmið
Stefnt skal að því nemandi
• geti unnið nokkuð viðamikil verkefni á margmiðlunarformi
• sýni færni í að fjalla um eigin hugmyndir á gagnrýninn hátt
• geti beitt sér af rökfestu við að greina og gagnrýna hugmyndir og vinnu annarra á sviði margmiðlunar
Námsfyrirkomulag
Nemendur vinna að sjálfstæðum verkefnum á sviði margmiðlunarhönnunar. Þeir skilgreina verkefni sín á áhugasviði sínu í samráði við kennara. Ef um viðameiri verkefni er að ræða geta fleiri en einn nemandi staðið að sama verkefni. Áhersla er lögð á að nemendur sýni agað og skipulagt vinnuferli frá fyrstu hugmynd til lokafrágangs hönnunarverkefnis. Samhliða eigin verkefnavinnu gagnrýna nemendur verkefni hver annars og rannsaka viðfangsefni og hugmyndafræði fagmanna á sínu sviði til að kynna fyrir öðrum nemendum. Áfanginn er kenndur 14 stundir á viku í samtals 6 vikur og að því loknu fer fram námsmat. Námið er fjölbreytt og skiptist í grófum dráttum í tvo hluta, verkstæðisvinnu og greiningu og mat. Í verkstæðisvinnunni eru verkefni skilgreind, frumhönnun gerð, unnið með hugmyndir og framkvæmd verkefnis. Við greiningu og mat er hönnunarferlið rætt, staða verkefna í vinnslu skilgreind, greinargerð um verkefni unnin og verk samtímalistamanna rannsökuð.
Námsmat
Námsáætlun
| Áfangi | Heiti | Nánara áfangaheiti |
|---|---|---|
| MHL403 | Lögmál, aðferðir og rýni | Margmiðlun: Verkstæði |
![]() Vor 2010 Kennarar: Hafdís Ólafsdóttir, Ingibjörg Friðriksdóttir og Margrét Rósa Sigurðardóttir. Lýsing:Í
áfanganum vinna nemendur að sjálfstæðum verkefnum á sviði
margmiðlunarhönnunar. Þeir skilgreina verkefni á sínu áhugasviði í
samráði við kennara. Ef um viðameiri verkefni er að ræða er sá
möguleiki fyrir hendi að fleiri en einn standi að sama verkefni.
Áhersla er lögð á að nemendur sýni agað og skipulagt vinnuferli frá
fyrstu hugmynd til lokafrágangs hönnunarverkefnis. Samhliða eigin
verkefnavinnu gagnrýna nemendur verkefni hver annars. Áfanganum lýkur
með viðamiklu lokaverkefni nemanda. Áfanginn er kenndur í 12 tíma á viku út önnina. Meginmarkmið:Nemandi
KennsluaðferðirNámið er fjölbreytt í áfanganum og skiptist í grófum dráttum í tvo fasa: 1) Verkstæðisvinnu :
Hér fer verkefnavinna nemenda fram. Nemendur vinna að verkefnum
samkvæmt eigin skilgreiningum og fer þessi vinna fram í þremur þrepum: 2) Greiningu og mat: Hér er um að ræða hugmyndafræðilegan stuðning við verkefni nemenda. Vinna þessi er fjölbreytt og margþætt:
Einkunnagjöf er tvíþætt fyrir hvert verkefni: A. (2/3 einkunnar) Mat á verklegum árangri.
B. (1/3 einkunnar) Mat á kynningu og þátttöku í umræðum. Einkunn fyrir hvorn þátt er gefin á skalanum 1–10. MætingarNemandi telst fallinn í áfanganum ef heildarfjarvistir hans á önninni vegna veikinda, leyfilegra og óleyfilegra fjarvista eru meira en 20% af heildarstundafjölda áfangans. Nemandi
er skráður fjarverandi í kennslustund ef 10 mínútur eru liðnar frá
upphafi hennar. Ef nemendur mæta seinna en 10 mínútum eftir upphaf
kennslustundar eru þeir vinsamlegast beðnir að bíða úti þar til næsta
kennslustund hefst.
| ||||||||||||||||||||||||||||||


